Nóg að gera bara eina magaæfingu á viku

Það þarf ekkert að djöfla sér út í ræktinni alla daga til að fá þvottabretti á magann, segja vísindamenn. Alveg nóg er bara að gera eina góða magaæfingu á viku. Þessar gleðifregnir koma frá vísindamönnum á Spáni sem fara nú eins og eldur í sinu um líkamsræktarheiminn. Um hundrað manns tók þátt í rannsókn þeirra sem stóð yfir í sex vikur. Þeim var skipt í hópa sem gerðu magaæfingar einu sinni, tvisvar eða þrisvar sinnum á viku. Mælingar á magavöðvum hópanna fyrir og eftir sýndi, svo ekki var um villst, að jafn mikil aukning varð á magavöðvum hjá þeim sem gerðu æfingar einu sinni í viku, tvisvar sinnum eða þrisvar. Rannsakendur telja þess vegna að aðeins ein magaæfing á viku sé nóg til að ná góðum árangri.

Jibbí!  Mynd: stocksnap.io
Jibbí!
Mynd: stocksnap.io

Heimild: Journal of Sports, Medicine and Physical Fitness og tímaritið iForm.

Tengdar greinar


    Veldu tímabil – upplýsingar um laust pláss og verð innan 24 klst.

    Engin skuldbinding.

    Hvaða tegund dvalar hentar þér?


    [select* departure first_as_label "Veldu dag eða tímabil" "Júní (athugum dagsetningar)" "1. - 15. júlí (14 nætur)" "12. - 26. júlí (14 nætur)" "1. – 15. ágúst" (14 nætur) "16.–30. ágúst" (14 nætur) "5.–19. september (14 nætur) ⭐" "10.–24. september (14 nætur)" "16.–30. september (14 nætur)" "Október (athugum dagsetningar)" "Nóvember (athugum dagsetningar)" "Janúar 2027"]










    Greitt beint til Long Vita. Engin skuldbinding.

    heilsuferdir@heilsan.is