Long Vita · vinsælasta dagskráin

Classic – Vellíðunardvöl

Hollt fæði, dagleg hreyfing, útivera og heilsulind – fyrir þá sem vilja setja heilsuna í forgang.

Vinsælasta dagskráin á Long Vita og hentar flestum.

Sjá verð
Classic · 14 nætur · einstaklingsherbergi frá 6.860 PLN · um 226.000 kr. Dvöl í 10 nætur er einnig í boði
Classic á Long Vita

Góður grunnur fyrir heilsudvölina

Classic er kjarnadagskrá Long Vita fyrir þá sem vilja hvílast, hreyfa sig reglulega og koma sér aftur í góða rútínu. Dvölin sameinar fullt fæði, daglega hreyfingu, göngur í náttúrunni og aðgang að heilsulindinni.

Long Vita er heilsuhótel í Kashubia-héraði nálægt Gdansk í Póllandi. Classic hentar vel í fyrstu heilsuferðina, en einnig þeim sem hafa komið áður og vilja einfaldlega gefa sér tíma þar sem hollur matur, hreyfing og hvíld eru hluti af hverjum degi.

Ekki viss hvaða dagskrá hentar? Classic er eðlilega fyrsta valið fyrir flesta. Sérhæfðu dagskrárnar byggja á svipuðum grunni en bæta við meiri áherslu á til dæmis þyngdarstjórnun, svefn, endurheimt eða þjálfun.
Innifalið í Classic

Dagleg hreyfing, hollt fæði og heilsulind

Classic er heildstæð vellíðunardvöl. Þú þarft ekki að setja saman einstaka þjónustu — grunnurinn að deginum er þegar til staðar og þú velur sjálf/ur hversu mikið þú tekur þátt.

Hollt og fjölbreytt fullt fæði Máltíðir eru hluti af dvölinni og skapa einfaldan ramma utan um daginn.
Daglegir hóptímar Fjölbreytt hreyfing með þjálfurum og möguleiki á að velja eftir eigin getu.
Daglegar Nordic Walking göngur Göngur í náttúrunni í kringum Long Vita eru hluti af daglegri dagskrá.
Aðgangur að heilsulind Sundlaug, heitir pottar, salthellir, gufuböð og saunur.
Daglegar Aufguss-gusur Gufubaðsathafnir undir stjórn gufumeistara eru hluti af upplifuninni.
Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu Fyrir þá sem vilja bæta eigin æfingu við skipulagða dagskrá dagsins.
Gisting er einnig innifalin í verði dvalarinnar. Þú velur gistingu sérstaklega — frá einstaklingsherbergi upp í rúmbetri Premium-valkosti.
Dagurinn á Long Vita

Skipulögð dagskrá — en þú ræður ferðinni

Dagskráin á Long Vita er skipulögð frá morgni til kvölds en enginn þarf að taka þátt í öllu. Þú getur stokkið inn í tímana eftir eigin getu og dagsformi. Næringarríkur matur, hreyfing, útivera og hvíld halda utan um daginn og gera það auðveldara að komast í góða rútínu.

Þetta er ekki bootcamp. Þú velur sjálf/ur hvort þú ferð í einn tíma, nokkra eða tekur rólegri dag.
Morgunn

Morgunmatur og fyrstu tímarnir

Dagurinn byrjar með morgunmat og hóptímum fyrir þá sem vilja taka þátt strax frá morgni.

Útivera

Nordic Walking í umhverfi Long Vita

Dagleg ganga er fastur hluti af Classic og leið til að fá hreyfingu og ferskt loft inn í daginn.

Eftir hádegi

Hreyfing, heilsulind eða hvíld

Eftir hádegisverð eru fleiri hóptímar á dagskrá og svigrúm til að velja heilsulind, eigin æfingu eða einfaldlega hvíld.

Kvöld

Kvöldverður og rólegri endir á deginum

Dagleg Aufguss-gusa er í boði fyrir þá sem vilja enda daginn í heilsulindinni áður en kvöldið róast.

Tímasetningar og einstaka liðir dagskrár geta breyst milli daga og dvalartímabila.
Lengd Classic dvalar

10 eða 14 nætur?

Classic er í boði í 10 og 14 nætur. Flestir velja 14 nætur, enda er lengri dvöl talin æskileg svo meiri tími gefist til að byggja upp jákvæðar heilsuvenjur sem eiga auðveldara með að fylgja með heim.

Styttri dvöl

10 nætur

Fyrir þá sem vilja upplifa Classic en hafa minni tíma til ráðstöfunar.

Frá · einstaklingsherbergi · einn gestur
um 162.000 kr.
4.900 PLN
  • Sama grunnuppbygging Classic-dagskrár.
  • Fullt fæði, hreyfing, göngur og heilsulind.
  • Gisting valin sérstaklega.
Sjá verð
Verðin miðast við verðskrá Long Vita 2026. Krónuverð er áætlað miðað við 1 PLN = 33 kr. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi þegar greitt er. Verð hækkar eftir því hvaða gistingu er valin.
Classic eða sérhæfð dagskrá?

Classic hentar flestum. Sérhæfðari dagskrár eru fyrir þá sem vilja meiri áherslu á ákveðið markmið.

Allar dagskrár Long Vita eiga margt sameiginlegt: hreyfingu, göngur og aðgang að heilsulind. Munurinn er fyrst og fremst meiri áhersla á ákveðið markmið og viðbótarþjónusta.

Sérhæfðari dagskrár

Þegar þú vilt meiri áherslu

Veldu sérhæfðari dagskrá ef þú vilt að dvölin snúist meira um ákveðið markmið.

  • Weight Management – þyngdarstjórnun og ráðgjöf.
  • Fitness & Wellbeing – meiri þjálfun og próteinríkt fæði.
  • Stress & Sleep – hvíld, slökun og svefn.
  • Detox eða Rehabilitation fyrir sértækari áherslu.
Skoða allar dagskrár
Gisting á Long Vita

Veldu svo gistinguna sem hentar þér

Classic-dagskráin er sú sama óháð gistingu. Þú getur valið hagkvæmt einstaklingsherbergi, vinsælt Mini Apartment, skógarhús eða rúmbetri Premium-gistingu eftir því hversu mikið rými og næði þú vilt.

Skoða alla gistimöguleika →
Spurt og svarað

Algengar spurningar um Classic á Long Vita

Hverjum hentar Classic?
Classic hentar þeim sem vilja almenna vellíðunardvöl með hollu fæði, reglulegri hreyfingu, útiveru og heilsulind. Það er vinsælasta dagskráin og eðlilegt fyrsta val ef þú þarft ekki sérhæfðari áherslu á til dæmis þyngdarstjórnun, svefn eða endurhæfingu.
Er Classic í boði í 10 og 14 nætur?
Já. Classic er í boði í 10 eða 14 nætur. Flestir velja 14 nætur til að gefa sér meiri tíma til að komast í góða rútínu og vinna með venjur sem geta fylgt með heim.
Er gisting innifalin í verðinu?
Já. Verðið felur í sér gistingu í þeirri gistingu sem þú velur, auk fæðis og Classic-dagskrárinnar. Gistitegundin hefur áhrif á heildarverðið.
Er sama Classic-dagskrá óháð gistingu?
Já. Þú velur dagskrá og gistingu sitt í hvoru lagi. Classic-dagskráin breytist því ekki þótt þú veljir einstaklingsherbergi, Forest House, Mini Apartment eða Premium-gistingu.
Þarf ég að taka þátt í öllum tímum?
Nei. Þú velur sjálf/ur hversu mikið þú tekur þátt og getur lagað hreyfinguna að eigin getu og dagsformi.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið í verði dvalarinnar og gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til framboð á Long Vita hefur verið staðfest.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Þegar dvöl er staðfest greiðist 1.000 PLN staðfestingargjald beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun.
Hvað ef ég veit ekki hvort Classic hentar mér?
Sendu fyrirspurn og veldu „Óviss – óska eftir ráðleggingu“ ef þú vilt bera Classic saman við aðra dagskrá. Íslensk aðstoð við valið kostar ekkert aukalega.

    Veldu tímabil sem hentar þér.
    Sendu fyrirspurn og fáðu staðfest framboð hjá Long Vita innan sólarhrings. Engin skuldbinding.





    Hvað á að gera ef valið er laust?




    Má hafa samband í síma?


    Sending getur tekið nokkrar sekúndur. Ýttu aðeins einu sinni á hnappinn.


    Greiðsla fyrir dvölina fer beint til Long Vita.
    Þegar dvöl er staðfest greiðist 1.000 PLN staðfestingargjald
    og eftirstöðvar við komu á Long Vita.