Þyngdarstjórnun

Þyngdarstjórnun · Long Vita í Póllandi

Þyngdarstjórnun

Fyrir þá sem vilja vinna markvisst með mataræði, hreyfingu og venjur — með reglulegri leiðsögn næringarfræðings og þjálfara.

Sjá verð
Þyngdarstjórnun · 14 nætur · einstaklingsherbergi um 268.000 kr. 8.600 PLN Verðskrá Long Vita 2027
Ný rútína

Markmiðið er að byggja upp betri venjur

Dvalarleiðin Þyngdarstjórnun á Long Vita er fyrir þá sem vilja nota dvölina til að koma meiri reglu á mataræði og hreyfingu.

Í stað þess að treysta bara á tímabundið átak færðu skipulagða umgjörð, hitaeiningalægra mataræði og reglulega ráðgjöf sem styður við nýjar matar- og hreyfivenjur.

Það er engin krafa um að vera í góðu formi. Hreyfingin er hluti af daglegri rútínu og hægt er að taka þátt eftir eigin getu.
Frábrugðið Classic dvalarleið

Meiri áhersla á þyngdarstjórnun og einstaklingsráðgjöf

Þyngdarstjórnun byggir á grunni Long Vita með daglegri hreyfingu, Nordic Walking og heilsulind, en bætir við meiri stuðningi við mataræði og hreyfingu.

✓
Hitaeiningalægra mataræði Mataræðið er sett upp með þyngdarstjórnun að leiðarljósi.
✓
Eitt einstaklingsviðtal við næringarfræðing á viku Á 14 nætur eru tvö einstaklingsviðtöl. Ráðgjöfin er aðlöguð að þörfum hvers gests.
✓
Tveir einkatímar með þjálfara á viku Persónulegri leiðsögn sem miðast við eigin getu og markmið.
✓
Tveir sundleikfimitímar á viku Hreyfing í vatni bætist við hefðbundna hóptíma og daglegar göngur.
✓
Daglegir hóptímar og Nordic Walking Regluleg hreyfing er hluti af hverjum degi á Long Vita.
✓
Aðgangur að heilsulind Sundlaug, heitir pottar, gufuböð og saunur eru hluti af dvölinni.
Dagurinn á Long Vita

Allt skipulagt svo þú getir einbeitt þér að þér

Á Long Vita mynda matur, hreyfing og hvíld skipulagða heild. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af matarinnkaupum, mæta í ræktina eða dreifa huganum. Allt er skipulagt fyrir þig svo þú getir hafið þína vegferð til að verða besta útgáfan af þér.

Sjá nánar hvernig dagurinn á Long Vita getur litið út →
Dæmi um dag

Þú velur hvað hentar þér

Það eru fastir tímar með þjálfurum og næringarfræðingi, en utan þeirra getur hver og einn raðað deginum saman eftir eigin áhuga og getu. Sumir vilja taka marga tíma, aðrir blanda saman hreyfingu, göngum, heilsulind og rólegum stundum — eða bara lesa bók eða prjóna uppi í sófa.

Maturinn er stór hluti af dvölinni. Long Vita leggur áherslu á vandað hráefni, grænmeti og ávexti og máltíðir sem eru unnar eftir ítarlegum uppskriftum í samstarfi næringarfræðinga og matreiðslumanna.

Í dvalarleiðinni Þyngdarstjórnun er mataræðið sérstaklega sett upp með þyngdarstjórnun að leiðarljósi. Sérþarfir vegna ofnæmis eða óþols eru teknar til greina þegar þær eru gefnar upp fyrirfram.
Morgunn

Morgunteygjur og létt ganga

Dagurinn getur byrjað á teygjum með þjálfara og rólegri morgungöngu í skóginum.

Morgunmatur

Næringarríkur morgunverður

Reglulegar máltíðir eru hluti af dagskránni og mynda grunn að nýrri matarvenju.

Fyrri hluti dags

Þjálfun eða viðtal við næringarfræðing

Fastir tímar með sérfræðingum eru hluti af dvalarleiðinni Þyngdarstjórnun og raðast inn í dagskrá dvalarinnar.

Hádegi

Hádegisverður og róleg stund

Tími til að borða í rólegheitum og taka hlé áður en síðari hluti dagsins hefst.

Síðdegi

Jóga, Pilates, sundleikfimi eða heilsulind

Veldu úr þeim tímum sem eru í boði eða nýttu heilsulindina og taktu daginn á þínum hraða.

Kvöld

Útigufa, hugleiðsla eða samvera

Kvöldið getur verið rólegt — sauna, göngutúr, spjall eða einfaldlega tími fyrir þig.

Þetta er dæmi um hvernig dagur getur litið út. Tímar og framboð geta breyst milli daga og þátttaka er valfrjáls utan þeirra tíma sem tilheyra einstaklingsráðgjöf dvalarleiðarinnar.
Þjálfarar og fagfólk á Long Vita

Persónulegri stuðningur við hreyfingu og næringu

Í Þyngdarstjórnun færðu bæði einstaklingsviðtöl um næringu og einkatíma með þjálfara, auk daglegra hóptíma, Nordic Walking og sundleikfimi samkvæmt dagskrá.

Klínísk næringarfræði & einkaþjálfun

Wojtek Sankiewicz

Klínískur næringarfræðingur, menntaður við Læknaháskólann í Gdansk, og einkaþjálfari. Hann sameinar næringarfræði og hreyfingu og hefur sérstaka reynslu af að vinna með fólki sem situr mikið í daglegu lífi og glímir við bakverki. Wojtek er einnig kraftlyftingaþjálfari og leggur áherslu á styrktarþjálfun sem grunn að góðu líkamlegu formi.

Íþróttafræði & fjölbreytt þjálfun

Catherine Senyk

Íþróttafræðingur og þjálfari, menntuð við Íþróttaháskólann í Katowice með áherslu á leiðréttandi leikfimi, ferðaþjónustu og útivist. Hún hefur starfað á líkamsræktarstöðvum víða um Pólland og hefur meðal annars réttindi í Pilates, TRX, Zumba, Les Mills Body Pump, Healthy Spine, virkniþjálfun og sundleikfimi.

Líkamsrækt, dans & sundleikfimi

Svetlana Zharikova

Reyndur þjálfari í líkamsrækt og sundleikfimi sem hefur starfað við hreyfingu og þjálfun frá árinu 1989. Hún lauk háskólanámi í lífeðlisfræði manna og dýra og hefur einnig lokið grunnnámi í ballett. Svetlana hefur meðal annars réttindi í Zumba Fitness, Zumba Gold, TBC, Pilates, step og sundleikfimi og kennir einnig þjóðdansa og samkvæmisdansa.

Íþróttafræði, vellíðunarþjálfun & sjúkraþjálfun

Victoria Grota

Íþróttafræðingur með sérhæfingu í andlegri þjálfun og vellíðunarþjálfun og stundar jafnframt nám í sjúkraþjálfun. Hún leggur áherslu á heildræna nálgun þar sem hreyfing, andlegur undirbúningur og þættir úr sjúkraþjálfun vinna saman. Áherslan er á örugga og einstaklingsmiðaða hreyfingu sem skilar bæði árangri og ánægju.

Einstaklingsmiðuð næringaviðtöl. Eitt viðtal á viku er innifalið — tvö viðtöl fyrir dvöl í tvær vikur. Ráðgjöfin er aðlöguð að þínum þörfum og getur falist í almennri næringarfræðslu og ráðleggingum eða, þegar þörf er á, einstaklingsbundnu næringarplani eða sértækari mataræðisráðleggingum.
14 nætur

Verð á Þyngdarstjórnun

Verðið hér miðast við einn gest í einstaklingsherbergi. Fleiri gistimöguleikar eru í boði og hægt er að sjá þá á verð- og gistingarsíðunum.

Þyngdarstjórnun · 14 nætur

Einstaklingsherbergi

um 268.000 kr.
8.600 PLN
  • Hitaeiningalægra mataræði.
  • Eitt viðtal við næringarfræðing á viku.
  • Tveir einkatímar með þjálfara á viku.
  • Tveir sundleikfimitímar á viku.
  • Daglegir hóptímar, Nordic Walking og aðgangur að heilsulind.
Verðið miðast við verðskrá Long Vita 2027. Krónuverð er sýnt fyrst til viðmiðunar, en Long Vita verðleggur og tekur við greiðslu í PLN. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi á greiðsludegi. Framboð sérhæfðrar dvalarleiðar og ráðgjafar er staðfest fyrir valdar dagsetningar áður en dvöl er ákveðin.
Hreyfing án pressu

Þú þarft ekki að mæta í toppformi

Þyngdarstjórnun snýst ekki um að keyra sig út. Hreyfingin er regluleg, fjölbreytt og hægt er að taka þátt eftir eigin getu. Markmiðið er að gera hreyfingu að eðlilegri hluta dagsins frekar en skammvinnu átaki.

Þyngdarstjórnun eða Classic?

Veldu eftir því hversu mikla áherslu þú vilt leggja á þyngdarstjórnun

Báðar dvalarleiðirnar byggja á fæði, daglegri hreyfingu, Nordic Walking og heilsulind. Þyngdarstjórnun bætir við meiri einstaklingsráðgjöf um mataræði og hreyfingu.

Classic

Ef þú vilt almenna vellíðan og góða rútínu

Classic hentar flestum og er einfaldara val ef þú vilt góða blöndu af hreyfingu, útiveru, hollu fæði og hvíld.

  • Hollt og fjölbreytt fullt fæði.
  • Daglegir hóptímar.
  • Daglegar Nordic Walking göngur.
  • Heilsulind og Aufguss-gusur.
Skoða Classic Skoða allar dvalarleiðir
Spurt & svarað

Algengar spurningar um Þyngdarstjórnun

Nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú sendir fyrirspurn.

Er Þyngdarstjórnun megrunarkúr?
Dvalarleiðin leggur áherslu á þyngdarstjórnun með hitaeiningalægra mataræði, reglulegri hreyfingu og einstaklingsráðgjöf. Markmiðið er ekki bara tímabundið átak, heldur að vinna með matar- og hreyfivenjur á skipulegan hátt.
Hversu oft hitti ég næringarfræðing?
Eitt einstaklingsviðtal við næringarfræðing á viku er innifalið. Á 14 nætur eru því tvö viðtöl. Ráðgjöfin er aðlöguð að þörfum hvers gests og getur verið almenn næringarfræðsla og ráðleggingar eða, þegar þörf er á, einstaklingsbundið næringarplan eða sértækari mataræðisráðleggingar.
Hversu mikil einkaþjálfun er innifalin?
Tveir einkatímar með þjálfara á viku eru innifaldir, auk daglegra hóptíma, Nordic Walking og tveggja sundleikfimitíma á viku.
Þarf ég að vera í góðu formi?
Nei. Hægt er að taka þátt í hreyfingu eftir eigin getu og dagsformi. Dvölin hentar líka fólki sem vill einfaldlega koma sér aftur af stað.
Er ákveðið þyngdartap tryggt?
Nei. Þyngdarbreyting er einstaklingsbundin og heilsan.is lofar ekki ákveðnum árangri á vigtinni. Dvalarleiðin er fyrst og fremst skipulögð heilsudvöl með áherslu á mataræði, hreyfingu og betri venjur.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið og gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til Long Vita hefur staðfest framboð.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Staðfestingargjald að upphæð 1.000 PLN er greitt beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslum fyrir dvölina.

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.