Svona getur dagurinn litið út

Dagskráin á Long Vita

Dagarnir hafa ákveðinn takt — en þú ræður ferðinni. Hreyfing, góðar máltíðir, útivera, heilsulind og tími til að gera nákvæmlega ekki neitt.

Þú þarft ekki að mæta í alla tíma. Sumir fylla daginn af hreyfingu og afþreyingu, aðrir velja einn eða tvo tíma, fara í heilsulindina og lesa bók eða prjóna uppi í sófa.
Rútína án stress

Það er alltaf eitthvað — líka slökun

Long Vita byggir daginn upp í kringum reglulegar máltíðir, hreyfingu, göngur og tíma til að slaka á.

Hóptímar og Nordic Walking eru hluti af daglegu flæði og síðan velur hver og einn hversu mikið hentar að taka þátt í þá stundina. Það er alveg jafn eðlilegt að sleppa tíma og fara í sauna, leggja sig eða sitja með bók, fara í nudd eða spjalla við aðra gesti sem hafa það sameiginlegt að vilja gefa heilsu og líðan meiri tíma.

Dagskráin er ekki nákvæmlega eins alla daga og getur breyst eftir árstíma, hópum og þeirri dvalarleið sem gestur velur.
Dæmi um dag

Frá morgunteygjum yfir í sauna á kvöldin

Enginn dagur þarf að líta nákvæmlega svona út. Þetta sýnir einfaldlega hvernig matur, hreyfing, útivera og hvíld geta raðast saman yfir daginn.

Þú velur svo sjálf/ur hvort þú takir fulla dagskrá eða rólegri útgáfu af deginum.

Morgunn

Teygjur og róleg byrjun

Margir byrja daginn á léttum teygjum eða öðrum hóptíma áður en morgunverður tekur við.

Morgunmatur

Góður morgunverður

Reglulegar máltíðir eru stór hluti af dvölinni og gefa deginum einfaldan og þægilegan takt.

Fyrri hluti dags

Hóptími eða Nordic Walking

Hægt er að fara í skipulagðan hóptíma eða taka þátt í daglegri Nordic Walking göngu í náttúrunni í kringum Long Vita.

Hádegi

Hádegisverður og hlé

Eftir hreyfingu er gott að setjast niður, borða í rólegheitum og hafa smá tíma fyrir sjálfa/n sig.

Síðdegi

Meiri hreyfing — eða alls engin

Hægt er að velja úr þeim tímum sem eru í boði, fara í göngutúr, nýta heilsulindina eða einfaldlega taka rólegan síðdegi.

Kvöld

Kvöldmatur, Aufguss og slökun

Eftir kvöldmat velja margir heilsulindina, sauna og daglega Aufguss-gusu — eða rólegt kvöld með spjalli, bók eða prjónum.

Þetta er aðeins dæmi. Tímasetningar, tímar og framboð breytast, og sérhæfðar dvalarleiðir geta bætt við einstaklingsviðtölum eða öðrum tímum.
Dagleg hreyfing

Hreyfing sem hægt er að laga að eigin getu

Hugmyndin er ekki að keyra sig út. Hreyfingin er regluleg og fjölbreytt og gestir geta valið hraða og álag eftir eigin getu og dagsformi.

✓
Daglegir hóptímar Teygjur, styrkur, þol og önnur hreyfing eftir dagskrá hvers dags.
✓
Nordic Walking Daglegar göngur í náttúrunni í kringum Long Vita.
✓
Þú þarft ekki að vera í formi Það er hægt að byrja rólega og taka þátt eftir eigin getu.
✓
Sérhæfðar dvalarleiðir bæta við Fitness, Þyngdarstjórnun, Endurhæfing og aðrar sérhæfðar dvalarleiðir geta innihaldið viðbótartíma eða einstaklingsbundna leiðsögn.
✓
Líkamsræktarsalur fyrir þá sem vilja meira Margir nýta sér líka líkamsræktarsalinn til að taka aðeins betur á því milli annarra dagskrárliða.
Máltíðirnar

Maturinn er hluti af dagskránni

Þú þarft ekki að versla inn, elda eða ákveða hvað verður í matinn. Máltíðirnar koma reglulega yfir daginn og Long Vita leggur áherslu á vandað hráefni, grænmeti og ávexti og uppskriftir sem unnar eru í samstarfi næringarfræðinga og matreiðslumanna.

Tími fyrir sjálfa/n þig

Það þarf ekki að fylla hvern klukkutíma

Það er ekkert mál að slaka á milli dagskrárliða. Stór hluti af dvölinni er heilsulindin. Þar er sundlaug, heitur pottur, gufuböð, infrared gufa og saltherbergi.

Svo er um að gera bara ekki neitt. Fara í nudd, snyrtimeðferð, lesa bók, prjóna eða setjast niður og spjalla við aðra gesti sem deila sama markmiði að bæta heilsu sína og líðan.

Þú ert í heilsudvöl — ekki æfingabúðum. Markmiðið er að finna takt sem þú getur notið í dvöl í 10, 14 eða 21 nótt.
Þinn hraði

Finndu þinn takt

Það er ekkert eitt rétt tempo á Long Vita. Sumir vilja mæta í flesta tíma, ganga á hverjum degi og nýta heilsulindina á kvöldin.

Aðrir koma til að sofa betur, hreyfa sig aðeins meira en heima og fá frið frá innkaupum, matargerð og daglegu amstri.

Bæði er alveg eðlilegt. Dvölin virkar best þegar hún er löguð að manneskjunni sem er í henni — ekki öfugt.

Dvalarleiðir

Sama umhverfi — sex mismunandi leiðir

Grunnurinn er svipaður, en dvalarleiðirnar leggja mismunandi áherslu á vellíðan, hreyfingu, þyngdarstjórnun, hvíld, endurhæfingu eða hreinsun og endurnýjun.

Vinsælasta valið

Classic. Vellíðunardvöl

Góð blanda af hollu fæði, daglegri hreyfingu, Nordic Walking, heilsulind og hvíld.

Skoða Classic →
Reikna verð →
Hreinsun og endurnýjun

Detox

Sérhæfðari dvalarleið með grænmetis- og ávaxtafæði, daglegri hreyfingu og reglulegum líkamsmeðferðum.

Skoða Detox →
Reikna verð →
Hvíld og endurheimt

Endurheimt eftir álag og kulnun

Fyrir þá sem finna fyrir langvarandi álagi eða kulnun og vilja hægja á, hvílast betur og ná aftur orku.

Skoða Endurheimt →
Reikna verð →
Sjúkraþjálfun og leiðsögn

Endurhæfing

Fyrir þá sem vilja markvissari endurhæfingu með mati, einstaklingsmeðferð hjá sjúkraþjálfara og æfingaáætlun.

Skoða Endurhæfingu →
Reikna verð →

Langar þig að sjá hvaða dvöl og dagsetningar henta?

Skoðaðu verð eftir gistingu og dvalarleið eða sendu fyrirspurn um framboð og hvaða dvöl gæti hentað best. Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

Reikna verð
Spurt & svarað

Algengar spurningar um dagskrána

Það sem fólk vill oftast vita áður en það leggur af stað.

Þarf ég að mæta í alla tíma?
Nei. Þú velur hversu mikið þú tekur þátt í almennum hóptímum og göngum. Sérhæfðar dvalarleiðir geta hins vegar innihaldið ákveðna tíma eða einstaklingsviðtöl sem eru hluti af þeirri dvalarleið.
Er dagskráin eins alla daga?
Nei. Tímar og framboð geta breyst milli daga og eftir árstíma. Dæmið á þessari síðu sýnir því hvernig dagur getur litið út, ekki fasta stundaskrá.
Þarf ég að vera í góðu formi?
Nei. Hreyfingin er ætluð fólki með mismunandi getu og hægt er að byrja rólega og taka þátt eftir eigin dagsformi.
Er tími til að slaka á?
Já. Það er góður tími milli dagskrárliða til að nýta heilsulindina, fara í göngutúr eða einfaldlega hvílast.
Er matur innifalinn?
Já. Fullt fæði er hluti af dvölinni. Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem valin er og hægt er að láta vita fyrirfram um ofnæmi eða óþol.
Hvaða dvalarleið hentar mér best?
Classic hentar flestum sem vilja almenna vellíðan og góða rútínu. Fitness. Orka og rútína, Þyngdarstjórnun, Endurheimt eftir álag og kulnun, Detox og Endurhæfing leggja meiri áherslu á ákveðin markmið. Hægt er að fá aðstoð við að bera valkostina saman áður en dvöl er ákveðin.
Er flug innifalið?
Nei. Gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til Long Vita hefur staðfest framboð.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Staðfestingargjald að upphæð 1.000 PLN er greitt beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslum fyrir dvölina.

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.