Mælir með
„Þessar tvær vikur hafa verið mér mikil betrumbót“
Þorsteinn Gunnar Jónsson
„Ég var þungur á sál og líkama og á þeim punkti þráði ég að komast út úr þessu sleni,
þessari leti á að gera eitthvað fyrir mig. En eftir að hafa farið niður á við andlega
þá fór líkaminn í hina áttina og þetta gekk ekki.
Ég leitaði að heilsuhótelum og -stöðum til að heimsækja þar til ég fann heilsan.is
og Long Vita. Auðun svaraði frekar fljótt og gaf mér góðar upplýsingar.
Ég ákvað að slá til og sé ekki eftir því!
Smá taugastrekktur er nær dró en Auðun var í góðu sambandi og þessar tvær vikur
hafa verið mér mikil betrumbót. Hér er vel séð um mann, frábærir þjálfarar og allt
sem maður þarfnast fyrir svona dvöl. Hollt fæði og farið í göngur á hverjum degi.
Alls konar líkamsrækt möguleg og svo allar gerðir af gufuböðum.
Skemmtilega lítil sundlaug þar sem sundleikfimi fer fram, hægt að fá nudd,
fót- og handsnyrtingu o.s.frv. Síðan er umhverfið ævintýralegt, vatnið við hótelið
er svo fallegt og að fara í sána á kvöldin og svo ofan í vatnið ... það er himneskt!
Ég er enn of þungur og held bara áfram þessa leið eftir dvölina hér.
Ég er samt léttari á mér og er miklu betri andlega ... þökk sé þessari ferð!
Get ekki annað mælt hundrað og rúmlega það prósent með þessu.
Takk fyrir mig, Auðun og heilsan.is. Ég stefni algjörlega á að koma aftur!“