Fitness & Wellbeing · Long Vita · heilsudvöl í Póllandi

Fitness. Orka og rútína

Meiri hreyfing, próteinríkt mataræði og persónulegri þjálfun fyrir þá sem vilja koma sér vel af stað.

Sjá verð
Orka og rútína · 14 nætur · einstaklingsherbergi um 259.000 kr. 8.300 PLN Dvöl í 10 nætur er einnig í boði
Fitness & Wellbeing · Orka og rútína

Fyrir þá sem vilja aðeins meira út úr hreyfingunni

Orka og rútína (Fitness & Wellbeing) byggir á sama grunni og Classic, en leggur meiri áherslu á hreyfingu, styrk og próteinríkt mataræði. Tveir einkatímar með þjálfara og tveir sundleikfimitímar bætast við daglega hóptíma og Nordic Walking.

Á Long Vita er ekki verið að eltast við að keyra fólk út. Hreyfingin er regluleg og fjölbreytt og hver og einn tekur þátt eftir eigin getu. Hugmyndin er að styrkja líkamann og gera hreyfingu að eðlilegri hluta dagsins — líka eftir að heim er komið.

Þú þarft ekki að vera í toppformi. Þú ræður hversu mikið þú tekur þátt og getur hagað hreyfingunni eftir eigin getu og dagsformi.
Samanborið við Classic

Meiri áhersla á hreyfingu og styrk

Dvalarleiðin Orka og rútína inniheldur allt það helsta sem gestir þekkja úr Classic, en bætir við nokkrum atriðum fyrir þá sem vilja hafa hreyfinguna meira í forgrunni.

✓
Próteinríkt og hollt mataræði Mataræðið er sett upp með meiri áherslu á prótein og næringu sem hentar virkari dagskrá.
✓
Tveir einkatímar með þjálfara Persónulegri tímar þar sem hægt er að fá leiðsögn sem miðast við eigin getu og markmið.
✓
Tveir sundleikfimitímar Sundleikfimi sem bætist við hefðbundna hóptíma og daglegar göngur.
✓
Meiri áhersla á reglulega hreyfingu Gott val fyrir þá sem vilja nýta dvölina sérstaklega til að byggja upp virkari rútínu.
Grunnurinn er áfram sá sami: daglegir hóptímar, Nordic Walking göngur, aðgangur að heilsulind, daglegar Aufguss-gusur, líkamsræktaraðstaða og gisting.
Dagurinn á Long Vita

Hreyfing er stór hluti dagsins — en þú velur taktinn

Dagskráin er skipulögð frá morgni til kvölds og þú getur valið úr hóptímum, göngum og öðrum hreyfitímum eftir eigin getu. Einkatímarnir með þjálfara eru síðan góð leið til að fá persónulegri leiðsögn meðan á dvölinni stendur.

Þú stjórnar álaginu. Hóptímarnir eru valfrjálsir og hægt er að velja hraða og ákefð eftir eigin getu og dagsformi.
Sjá nánar hvernig dagurinn á Long Vita getur litið út →
Morgunn

Morgunmatur og fyrsti hóptíminn

Dagurinn byrjar með morgunmat og möguleika á að fara beint í hreyfingu ef það hentar.

Útivera

Nordic Walking í náttúrunni

Dagleg ganga í umhverfi Long Vita gefur bæði hreyfingu og ferskt loft inn í daginn.

Þjálfun

Hóptímar, sundleikfimi og einkatímar

Orka og rútína bætir við einkatímum með þjálfara og sundleikfimi samkvæmt dagskrá dvalarinnar.

Endurheimt

Heilsulind, Aufguss og rólegri endir á deginum

Eftir hreyfingu er hægt að nýta sundlaug, heita potta, gufuböð og saunur eða einfaldlega taka því rólega.

Tímasetningar og einstakir liðir dagskrár geta breyst milli daga og dvalartímabila.
Þjálfararnir á Long Vita

Reyndir og hvetjandi þjálfarar

Á Long Vita starfar fjölbreyttur hópur þjálfara með reynslu af styrktarþjálfun, fitness, sundleikfimi, liðleika og einstaklingsmiðaðri hreyfingu.

Klínísk næringarfræði & einkaþjálfun

Wojtek Sankiewicz

Klínískur næringarfræðingur, menntaður við Læknaháskólann í Gdansk, og einkaþjálfari. Hann sameinar næringarfræði og hreyfingu og hefur sérstaka reynslu af að vinna með fólki sem situr mikið í daglegu lífi og glímir við bakverki. Wojtek er einnig kraftlyftingaþjálfari og leggur áherslu á styrktarþjálfun sem grunn að góðu líkamlegu formi.

Íþróttafræði & fjölbreytt þjálfun

Catherine Senyk

Íþróttafræðingur og þjálfari, menntuð við Íþróttaháskólann í Katowice með áherslu á leiðréttandi leikfimi, ferðaþjónustu og útivist. Hún hefur starfað á líkamsræktarstöðvum víða um Pólland og hefur meðal annars réttindi í Pilates, TRX, Zumba, Les Mills Body Pump, Healthy Spine, virkniþjálfun og sundleikfimi.

Líkamsrækt, dans & sundleikfimi

Svetlana Zharikova

Reyndur þjálfari í líkamsrækt og sundleikfimi sem hefur starfað við hreyfingu og þjálfun frá árinu 1989. Hún lauk háskólanámi í lífeðlisfræði manna og dýra og hefur einnig lokið grunnnámi í ballett. Svetlana hefur meðal annars réttindi í Zumba Fitness, Zumba Gold, TBC, Pilates, step og sundleikfimi og kennir einnig þjóðdansa og samkvæmisdansa.

Íþróttafræði, vellíðunarþjálfun & sjúkraþjálfun

Victoria Grota

Íþróttafræðingur með sérhæfingu í andlegri þjálfun og vellíðunarþjálfun og stundar jafnframt nám í sjúkraþjálfun. Hún leggur áherslu á heildræna nálgun þar sem hreyfing, andlegur undirbúningur og þættir úr sjúkraþjálfun vinna saman. Áherslan er á örugga og einstaklingsmiðaða hreyfingu sem skilar bæði árangri og ánægju.

Hreyfing á Long Vita er ekki keppni. Markmiðið er að styrkja líkamann, bæta liðleika og úthald og finna hreyfingu sem hentar eigin getu — svo auðveldara sé að halda áfram þegar heim er komið.
Lengd dvalar

10 eða 14 nætur?

Dvölin er í boði í 10 og 14 nætur. Flestir velja 14 nætur, enda gefur lengri dvöl meiri tíma til að koma reglulegri hreyfingu og hollari venjum inn í daglegt líf áður en haldið er heim.

Styttri dvöl

10 nætur

Fyrir þá sem vilja Orku og rútínu en hafa minni tíma til ráðstöfunar.

Frá · einstaklingsherbergi · einn gestur
um 186.000 kr.
5.970 PLN
  • Próteinríkt og hollt fullt fæði.
  • Daglegir hóptímar og Nordic Walking.
  • Einkatímar með þjálfara og sundleikfimi.
  • Aðgangur að heilsulind og líkamsræktaraðstöðu.
Sjá verð
Verðin miðast við verðskrá Long Vita 2027. Krónuverðin eru sýnd fyrst til viðmiðunar, en Long Vita verðleggur og tekur við greiðslu í PLN. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi á greiðsludegi. Verð hækkar eftir því hvaða gistingu er valin.
Orka og rútína eða Classic?

Veldu eftir því hversu mikið þú vilt leggja upp úr hreyfingunni

Báðar dvalarleiðirnar byggja á hollu fæði, daglegri hreyfingu, göngum og heilsulind. Munurinn liggur fyrst og fremst í því hvað þú vilt leggja mesta áherslu á.

Classic

Ef þú vilt almenna vellíðan og góða rútínu

Classic hentar flestum og er einfaldara val ef þú vilt góða blöndu af hreyfingu, útiveru, hollu fæði og hvíld.

  • Hollt og fjölbreytt fullt fæði.
  • Daglegir hóptímar.
  • Daglegar Nordic Walking göngur.
  • Heilsulind og Aufguss-gusur.
Skoða Classic Skoða allar dvalarleiðir
Sundleikfimi og endurheimt

Hreyfing í vatni léttir á liðunum

Tveir sundleikfimitímar eru innifaldir í Orku og rútínu. Vatnið veitir mótstöðu án þess að sama álag leggist á liði og við margar æfingar á þurru landi. Eftir tímana er svo hægt að nýta heilsulindina, sundlaugina, heitu pottana, gufuböðin og saunurnar.

Skoða gistingu á Long Vita
Spurt og svarað

Algengar spurningar um Orku og rútínu

Þarf ég að vera í góðu formi til að velja þessa dvalarleið?
Nei. Þú ræður hversu mikið þú tekur þátt og getur hagað hreyfingunni eftir eigin getu og dagsformi. Dvalarleiðin hentar því ekki bara fólki sem æfir mikið fyrir.
Hvað bætist við miðað við Classic?
Orka og rútína leggur meiri áherslu á hreyfingu og styrk. Próteinríkt mataræði, tveir einkatímar með þjálfara og tveir sundleikfimitímar eru meðal þess sem bætist við.
Hversu margir einkatímar með þjálfara eru innifaldir?
Tveir einkatímar með þjálfara eru innifaldir í Orku og rútínu.
Er sundleikfimi innifalin?
Já. Tveir sundleikfimitímar eru innifaldir samkvæmt dagskrá dvalarinnar.
Er hægt að nota líkamsræktaraðstöðuna utan hóptíma?
Já. Gestir hafa aðgang að líkamsræktaraðstöðunni yfir daginn og fram á kvöld. Hún lokar um kl. 22.
Er Orka og rútína í boði í 10 og 14 nætur?
Já. Hægt er að velja dvöl í 10 eða 14 nætur. Flestir velja 14 nætur til að fá meiri tíma til að byggja upp reglulega hreyfingu og hollar venjur.
Er flug innifalið í verðinu?
Nei. Flug er ekki innifalið og gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til framboð á Long Vita hefur verið staðfest.

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.