Long Vita er heildstæð heilsudvöl.
Gisting, matur, hreyfing og aðgangur
að heilsulind eru hluti af upplifuninni
frá fyrsta degi.
✓
Gisting
Þú velur þá gistingu sem hentar þér best.
✓
Fullt fæði
Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur.
✓
Dagleg hreyfing
Fjölbreyttir hóptímar og daglegar Nordic Walking göngur.
✓
Heilsulind
Sundlaug, heitur pottur, gufuböð,
saltherbergi og slökun.
✓
Daglegar Aufguss-gusur
Gufubaðsathafnir undir stjórn gufumeistara.
✓
Íslensk aðstoð
Aðstoð við val á dvalarleið,
gistingu og undirbúning án aukakostnaðar.
Sérhæfðu dvalarleiðirnar bæta meira við.
Það getur meðal annars verið einkaþjálfun,
sjúkraþjálfun, næringarráðgjöf, nudd
eða önnur einstaklingsmiðuð þjónusta.
Spurt og svarað
Algengar spurningar um verð
Eru verðin í íslenskum krónum föst?
Nei. Verð Long Vita er ákveðið í pólskum zloty.
Krónuverðin eru áætluð miðað við gengi
Seðlabanka Íslands. Dagsetning gengisins
birtist undir reikninum. Endanlegt krónuverð
ræðst af genginu þegar greitt er.
Er ódýrara ef tveir deila herbergi?
Já. Veldu „2 gestir – deila“ í reikninum
til að sjá verð á mann og heildarverð fyrir tvo.
Fyrir dvalir árið 2026 þarf að staðfesta
verð fyrir tvo sérstaklega.
Hversu lengi er venjulega dvalið?
14 nætur eru aðalvalið.
Reiknirinn sýnir sjálfkrafa þær dvalarlengdir
sem eru í boði fyrir hverja dvalarleið —
10, 14 eða 21 nótt eftir því hvað þú velur.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið í verði dvalarinnar
og gestir bóka flug sjálfir.
Geta verðin breyst?
Já. Reiknirinn notar verðskrá 2026 eða 2027
eftir völdu ári. Endanlegt verð og framboð
eru staðfest áður en bókað er.
Dvöl yfir áramót þarf sérstaka verðstaðfestingu.
Kostar íslenska aðstoðin eitthvað aukalega?
Nei. Aðstoð við val á dvalarleið og gistingu,
undirbúning fyrir ferðina og samskipti við
Long Vita kostar gestinn ekkert aukalega.
Auðun Georg Ólafsson
Tengiliður Long Vita á Íslandi
Ég hef sjálfur farið reglulega á Long Vita
síðustu fimm ár og fer þangað að minnsta kosti
einu sinni á ári. Ég þekki því staðinn af eigin
raun og get hjálpað þér að velja dvöl og gistingu
sem hentar því sem þú vilt fá út úr ferðinni.
Íslensk aðstoð án aukakostnaðar
Aðstoð við val á dvalarleið og gistingu
Góð ráð og tékklisti fyrir ferðina
Fjarstuðningur meðan dvöl stendur
Heilsan.is er íslensk kynningar- og upplýsingasíða
fyrir Long Vita. Samningur um dvölina er gerður
beint við Long Vita og allar greiðslur vegna
dvalarinnar fara beint til Long Vita.
Heilsan.is tekur ekki við greiðslum vegna gistingar,
dvalar, flugs eða annarrar ferðaþjónustu.
Greitt beint til Long Vita.
Staðfestingargjald er
um 31.000 kr.
(1.000 PLN)
og eftirstöðvar greiðast við komu.
Flug er ekki innifalið.