Hollt fæði
Fullt fæði er hluti af dvölinni. Mataræðið fer eftir þeirri dagskrá sem þú velur og hægt er að taka tillit til ýmissa þarfa.
Heilsudvöl þar sem dagurinn snýst um hollan mat, hreyfingu, útiveru og hvíld — í rólegu umhverfi við vatn og skóg Kashubia-héraðs.
Long Vita – Czapielski Młyn er heilsuhótel í Kashubia í Póllandi, við Bukrzyno Duże-vatn og umkringt skógi.
Hingað hafa gestir komið í áraraðir til að taka sér almennilega hvíld frá daglegu amstri og setja heilsu sína í fyrsta sæti.
Í stað þess að þurfa sjálf/ur að ákveða hvað eigi að borða eða hvort maður nenni að hreyfa sig er umgjörðin þegar til staðar: fullt fæði, skipulögð hreyfing, göngur, heilsulind og tími til að hvílast.
Þú þarft ekki að mæta í alla tíma sem eru í boði á Long Vita. Þegar matur, hreyfing, hvíld og góð aðstaða eru á sama stað verður auðveldara að halda góðum takti.
Fullt fæði er hluti af dvölinni. Mataræðið fer eftir þeirri dagskrá sem þú velur og hægt er að taka tillit til ýmissa þarfa.
Hóptímar, göngur og önnur hreyfing eru í boði alla daga. Þú tekur þátt eftir eigin getu og velur hversu mikið þú vilt gera.
Sundlaug, heitur pottur, gufubað, infrared gufa og salthellir veita svigrúm til að slaka á milli dagskrárliða.
Engin innkaup, eldamennska eða venjulegt daglegt áreiti sem þarf að sinna. Þú ræður sjálf/ur taktinum.
Long Vita er fjölskyldurekið. Mario Maskewitz og eiginkona hans eru önnur kynslóð eigenda og taka virkan þátt í rekstrinum.
Frá árinu 2005 hefur staðurinn þróast frá þyngdarstjórnunarmiðstöð yfir í heilsuhótel þar sem næring, hreyfing, hvíld og endurheimt vinna saman.
Á Long Vita starfar einnig teymi þjálfara og fagaðila sem sinnir meðal annars hreyfingu, sjúkraþjálfun, nuddi, líkamsmeðferðum og heilsutengdri ráðgjöf.
Long Vita stendur við Bukrzyno Duże-vatn í grænu Kashubia-héraði í norðurhluta Póllands.
Þú færð ramma utan um daginn en þarft ekki að vera í stanslausri dagskrá. Hver og einn velur það sem hentar hverju sinni.
Dagurinn byrjar rólega og síðan eru ýmsir hóptímar eða göngur í boði.
Nordic Walking, styrktar- og hreyfitímar eða einfaldlega göngutúr í umhverfinu.
Hóptímar með þjálfurum, sundleikfimi og heilsulind. Eða þú getur bara notað tímann eins og þú vilt.
Kvöldin eru róleg og daglegar Aufguss-saunaathafnir eru hluti af upplifuninni á Long Vita.
Vellíðunardvölin, Classic, hentar flestum. Sérhæfðari dagskrár eru fyrir þá sem vilja leggja meiri áherslu á ákveðin markmið.
Almenn vellíðan, hollt fæði, dagleg hreyfing, útivera og góð rútína. Góður kostur fyrir fyrstu dvölina.
Fyrir þá sem vilja vinna markvisst að þyngdarstjórnun og byggja upp betri matar- og hreyfivenjur.
Fyrir þá sem eru undir miklu álagi og vilja leggja meiri áherslu á hvíld, slökun og betri svefnrútínu.
Fyrir þá sem vilja leggja meiri áherslu á hreyfingu, styrk, úthald og próteinríkt mataræði.
Sérhæfðari dagskrá með léttara mataræði, fersku grænmeti og ávöxtum og reglulegum líkamsmeðferðum.
Fyrir þá sem vilja markvissari einstaklingsmiðaðan stuðning við hreyfingu og líkamlega endurheimt.
Dæmið miðast við Vellíðunardvöl / Classic í einstaklingsherbergi. Gisting, fullt fæði, dagleg dagskrá og aðgangur að heilsulind eru innifalin. Flug er ekki innifalið.
Verð miðast við verðskrá Long Vita 2026. Verð geta breyst þegar ný verðskrá tekur gildi.
Einstaklingsherbergi, íbúð eða skógarhús — allt eftir því hversu mikið rými og næði þú vilt.
Þægilegt og hagkvæmt val fyrir þá sem vilja hafa sitt eigið rými.
Skoða nánar →Skógarhús fyrir þá sem vilja meira næði, kyrrð og vera nær náttúrunni.
Skoða nánar →Rúmbetri gisting í hótelbyggingunni fyrir þá sem vilja meiri þægindi.
Skoða nánar →Rúmbetra skógarhús fyrir þá sem vilja meira rými, kyrrð og næði.
Skoða nánar →Flestir eru einfaldlega að leita að tíma og umgjörð til að finna taktinn á ný.
Wizz Air flýgur beint frá Keflavík til Gdansk. Icelandair bætist við 18. september 2026. Gestir bóka flugið sjálfir og best er að bíða með flugbókun þar til dvölin á Long Vita hefur verið staðfest.
Hægt er að óska eftir akstri frá flugvellinum í Gdansk til Long Vita.
Beinar ferðir milli Keflavíkur og Gdansk.
Beint flug milli Keflavíkur og Gdansk. Flugdagar og verð fara eftir tímabilum.
Beint flug milli Keflavíkur og Gdansk frá 18. september 2026.
„Ég fór í þessa ferð til Póllands því ég var hreinlega búinn á því á líkama og sál. Vinnan mín er líkamlega erfið og ég fann að ég þurfti að gera eitthvað róttækt til að ná vopnum mínum aftur.“
„Ég missti nokkur kíló, en það sem skipti mestu máli var orkan sem ég fékk aftur.“
„Þetta er ekki bara frí – þetta er raunveruleg fjárfesting í eigin heilsu og vellíðan.“
Aðstoðar íslenska gesti við val á dagskrá og gistingu, undirbúning fyrir ferðina og samskipti við Long Vita.