Long Vita Saman – heilsuferð til Póllands
Veldu tveggja vikna heilsudvöl á Long Vita á sama tíma og aðrir Íslendingar — með hollu fæði, hreyfingu, heilsulind og stuðningi frá reynslumiklum gestgjöfum sem tekið hafa á móti vel yfir þúsund Íslendingum frá 2003.
Heilsuferð til Póllands – á eigin vegum með öðrum Íslendingum
Long Vita Saman er heilsuferð til Póllands fyrir fólk sem vill ferðast á eigin vegum og ráða sér sjálft en vill njóta stuðnings og félagsskapar annarra Íslendinga á staðnum. Þú velur dvalarleið, gistingu og hversu mikið þú tekur þátt í dagskránni.
Dvölin fer fram á Long Vita í Póllandi, heilsuhóteli í Kashubia-héraði þar sem matur, hreyfing, útivera, heilsulind og hvíld eru á sama stað. Þetta er ekki hefðbundin skipulögð hópferð þar sem allir fylgja sömu dagskrá dag frá degi heldur er mikill sveigjanleiki fyrir hvern og einn.
Hvað er innifalið í heilsudvölinni?
Á Long Vita í Póllandi færðu umgjörð utan um heilsuna í tvær vikur: fullt fæði, daglega hreyfingu, útiveru, heilsulind og tíma til að hvílast. Nákvæmt innihald fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur.
Fullt fæði
Allar máltíðir eru innifaldar. Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur.
Dagskrá með þjálfurum
Fjölbreytt dagskrá með þjálfurum frá morgni og fram á kvöld. Þú velur hvaða tíma þú sækir.
Gestgjafar
Reynsla, móttaka og stuðningur frá gestgjöfum sem þekkja þarfir Íslendinga vel.
Heilsulind
Sundlaug, heitur pottur, gufuböð, saltherbergi og aðstaða til slökunar.
Meira ef þú vilt
Möguleiki er á sundleikfimi og nuddi gegn vægu aukagjaldi, eftir framboði og dvalarleið.
Í öruggum höndum
Mario Maskewitz og eiginkona hans eru önnur kynslóð eigenda Long Vita og halda áfram þeirri fjölskylduhefð að sameina persónulega gestrisni, heilsu og vellíðan. Mario hefur mikla reynslu af íslenskum gestum og hefur tekið á móti þeim um árabil.
Við komu færð þú kynningu á staðnum, aðstöðunni og hvernig dvölin virkar svo þú komist fljótt í réttan takt.
Mario leggur mikla áherslu á persónulega og greiðvikna þjónustu ásamt starfsfólki sínu. Á meðan á dvölinni stendur heldur hann tvo fræðandi fyrirlestra um langlífi, lífsstíl og þær venjur sem geta stutt við betri heilsu til lengri tíma.
Fagfólkið sem leiðir þig áfram
Á Long Vita starfar reynslumikið fagfólk með ólíka sérhæfingu í hreyfingu, næringu, þjálfun og vellíðan. Þú velur þau námskeið og þá hreyfingu sem henta þínum markmiðum, getu og dagsformi.
Wojtek Sankiewicz
Klínískur næringarfræðingur, menntaður við Læknaháskólann í Gdansk, og einkaþjálfari. Hann sameinar næringarfræði og hreyfingu og hefur sérstaka reynslu af að vinna með fólki sem situr mikið í daglegu lífi og glímir við bakverki. Wojtek er einnig kraftlyftingaþjálfari og leggur áherslu á styrktarþjálfun sem mikilvægan grunn að góðu líkamlegu formi.
Catherine Senyk
Íþróttafræðingur og þjálfari, menntuð við Íþróttaháskólann í Katowice með áherslu á leiðréttandi leikfimi, ferðaþjónustu og útivist. Hún hefur starfað á líkamsræktarstöðvum víða um Pólland og hefur meðal annars réttindi í Pilates, TRX, Zumba, Les Mills Body Pump, Healthy Spine, virkniþjálfun og sundleikfimi.
Svetlana Zharikova
Reyndur þjálfari í líkamsrækt og sundleikfimi sem hefur starfað við hreyfingu og þjálfun frá 1989. Hún lauk háskólanámi í lífeðlisfræði manna og dýra og hefur einnig lokið grunnnámi í ballett. Svetlana hefur meðal annars réttindi í Zumba Fitness, Zumba Gold, TBC, Pilates, step og sundleikfimi og kennir einnig þjóðdansa og samkvæmisdansa.
Victoria Grota
Íþróttafræðingur með sérhæfingu í andlegri þjálfun og vellíðunarþjálfun og stundar jafnframt nám í sjúkraþjálfun. Hún leggur áherslu á heildræna nálgun þar sem hreyfing, andlegur undirbúningur og þættir úr sjúkraþjálfun vinna saman. Áherslan er á örugga og einstaklingsmiðaða hreyfingu sem skilar bæði árangri og ánægju.
Þú velur þá dvalarleið á Long Vita sem hentar þér
Long Vita Saman er sameiginlegt dvalartímabil, ekki ein sameiginleg dvalarleið. Þú velur þá leið sem hentar þínum markmiðum.
Þú hittir aðra í máltíðum, hóptímum, göngum og í heilsulindinni en enginn þarf að vera með hópnum allan daginn. Dagskráin er frjáls og hver tekur þátt eftir eigin getu.
Classic. Vellíðunardvöl
Hollt fæði, dagleg hreyfing, göngur, heilsulind og góð rútína.
Skoða Vellíðunardvöl →Detox
Sérhæfðari dvöl með áherslu á mataræði, hreyfingu og líkamsmeðferðir.
Skoða Hreinsun og endurnýjun →Fitness. Orka og rútína
Meiri áhersla á hreyfingu, styrk, úthald og próteinríkt mataræði.
Skoða Orku og rútínu →Þyngdarstjórnun
Markvissari stuðningur við mataræði, hreyfingu og venjur.
Skoða Þyngdarstjórnun →Hvíld, slökun og betri svefn
Meira rými fyrir hvíld, slökun og rólegra daglegt flæði.
Skoða Hvíld, slökun og betri svefn →Endurhæfing
Fagleg leiðsögn, einstaklingsmiðuð sjúkraþjálfun og æfingaprógram.
Skoða Endurhæfingu →„Þessar tvær vikur hafa verið mér mikil betrumbót“
„Ég kom hingað þungur á sál og líkama en fer héðan léttari á mér og miklu betri andlega. Hér er hugsað vel um mann, frábærir þjálfarar, hollur matur og nóg af hreyfingu, göngum og slökun.“
„Frábær leið til að draga sig út úr daglegu amstri, borða hollan mat og hreyfa sig.“
Þuríður Hallgrímsdóttir„Dásamlegur staður í undur fallegu og veðursælu umhverfi, ef þú vilt bæta lífsstílinn og hvíla þig á öllu áreiti, þá er þetta rétti staðurinn.“
Margrét Kjartansdóttir„Ég missti nokkur kíló, en það sem skipti mestu máli var orkan sem ég fékk aftur.“
Magnús SteindórssonAuðun Georg Ólafsson
Ég er tengiliður Long Vita á Íslandi og aðstoða þig við að velja dvalarleið og gistingu, kanna framboð og undirbúa dvölina. Aðstoðin er þér að kostnaðarlausu og greiðslur fyrir dvölina fara beint til Long Vita.