Stress & Sleep Management · Long Vita í Póllandi

Hvíld, slökun og betri svefn

Fyrir þá sem hafa verið undir miklu álagi og þurfa að hægja verulega á — sofa betur, slaka á og gefa líkama og huga tíma til að ná sér.

Hvíld, slökun og betri svefn · 14 nætur · einstaklingsherbergi um 287.000 kr. 9.200 PLN Dvöl í 21 nótt er einnig í boði
Þegar þú þarft raunverulega að hægja á

Þegar helgin dugar ekki lengur til að hlaða batteríin

Langvarandi álag getur tæmt orkuna smám saman. Svefninn verður verri, líkaminn nær ekki almennilega niður og jafnvel frídagarnir fara í að reyna að jafna sig eftir vikuna.

Þá getur verið verðmætt að komast alveg út úr daglegu umhverfi og gefa sér raunverulegan tíma til að hvílast. Hér er engin krafa um að nýta hverja mínútu. Þú mátt sofa út, fara í nudd, liggja í heilsulindinni, ganga rólega úti eða einfaldlega gera lítið.

Þetta er dvöl fyrir þá sem þurfa ekki nýtt verkefni eða annað átak. Hugmyndin er þvert á móti að gefa sér leyfi til að sleppa takinu um stund.
Hvað einkennir dvölina?

Meiri tími fyrir slökun, nudd og hvíld

Dvalarleiðin er byggð upp þannig að auðvelt sé að hægja á. Nudd, heilsulind, kyrrð og náttúra fá meira rými og þú hefur tíma til að hvílast án þess að þurfa að fylla daginn af verkefnum. Hreyfing með þjálfurum og göngur eru í boði ef þig langar, en þátttaka er ekki nauðsynleg.

✓
Þrjú 50 mínútna slökunarnudd á viku Reglulegt nudd er einn af stærstu þáttunum sem aðgreinir þessa dvalarleið.
✓
Létt og auðmeltanlegt mataræði Reglulegar máltíðir án þess að þú þurfir að hugsa um innkaup eða matseld.
✓
Einn tími með markþjálfa á viku Tími til að staldra við og skoða hvernig þú vilt taka upp þráðinn þegar heim er komið.
✓
Aðgangur að hugleiðsluherbergi Rými fyrir kyrrð og ró þegar þú vilt einfaldlega vera með sjálfri eða sjálfum þér.
✓
Heilsulind og sauna Sundlaug, heitir pottar, gufuböð og saunur eru hluti af dvölinni.
✓
Hreyfing ef þig langar Daglegir hóptímar, Nordic Walking og hreyfing með þjálfurum eru í boði. Þú ræður hvort þú tekur þátt eða velur frekar hvíld.
Reikna verð eftir gistingu →
Þú ræður taktinum

Það má líka bara vera

Long Vita býður upp á dagskrá alla daga, en á þessari dvöl er engin ástæða til að fylla daginn af verkefnum. Veldu það sem gefur þér eitthvað og slepptu hinu.

01

Sofðu og hvíldu þig

Byrjaðu daginn rólega. Engin þörf á að hoppa fram úr rúminu til að ná fyrsta tímanum.

02

Láttu dekra við þig

Nudd, heilsulind, gufur og kyrrð eru eðlilegur hluti af deginum. Þú þarft ekki að „vinna“ þér inn fyrir slökuninni.

03

Hreyfðu þig þegar það hentar

Farðu í göngu, hóptíma eða æfingu með þjálfara þegar þú hefur lyst og orku. Það er í boði — ekki skylda.

Um langvarandi álag og kulnun: Fólk sem hefur verið undir miklu álagi eða upplifað kulnun (burnout) leitar oft að leið til að komast alveg út úr daglegri keyrslu og ná aftur almennilegri hvíld. Long Vita er heilsuhótel og þessi dvöl er ekki læknismeðferð við kulnun, svefnvanda eða öðrum heilsufarsvandamálum.
Lengd dvalar

14 eða 21 nótt

Tvær vikur gefa góðan tíma til að komast út úr daglegu álagi. Þrjár vikur gefa enn meira svigrúm til að hægja á og leyfa rólegri takti að verða eðlilegri.

21 nótt

Þrjár vikur með meira svigrúmi

Fyrir þá sem vilja gefa sér enn lengri tíma í kyrrð, hvíld og rólegra daglegt flæði.

um 423.000 kr.
13.550 PLN · einstaklingsherbergi
  • Sama dvalarleið í þrjár vikur.
  • Þrjú slökunarnudd á viku.
  • Einn tími með markþjálfa á viku.
  • Meiri tími fyrir hvíld, heilsulind og ró.
Reikna verð
Verðin miðast við verðskrá Long Vita 2027 og einn gest í einstaklingsherbergi. Krónuverðin eru sýnd fyrst til viðmiðunar, en Long Vita verðleggur og tekur við greiðslu í PLN. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi á greiðsludegi. Önnur gisting er einnig í boði.
Kyrrð og ró

Skógur, vatn og engin dagleg keyrsla

Long Vita stendur við vatn í grænu Kashubia-héraði og er umkringt skógi. Hér getur dagurinn verið einfaldur: borða, hvílast, fara í nudd, ganga aðeins, fara í gufuna — eða gera ekki neitt sérstakt.

Sjá hvernig dagurinn á Long Vita getur litið út →
Hvíld og slökun eða Classic?

Veldu eftir því hvað þú þarft mest á að halda

Báðar dvalarleiðirnar gefa aðgang að Long Vita, fæði, hreyfingu og heilsulind. Munurinn er að hér fær slökunin meira vægi og reglulegt nudd er hluti af dvalarleiðinni.

Classic

Þegar þú vilt almenna vellíðan og meiri virkni

Classic hentar flestum og er gott val ef þú vilt meiri blöndu af hreyfingu, útiveru, hollu fæði og hvíld.

  • Hollt og fjölbreytt fullt fæði.
  • Daglegir hóptímar.
  • Daglegar Nordic Walking göngur.
  • Heilsulind og Aufguss-gusur.
Spurt & svarað

Algengar spurningar um hvíld, slökun og betri svefn

Nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú sendir fyrirspurn.

Þarf ég að taka þátt í hóptímum og hreyfingu?
Nei. Hreyfing, Nordic Walking og hóptímar eru í boði en þú velur þátttöku eftir eigin getu, áhuga og dagsformi. Á þessari dvöl er alveg eðlilegt að leggja meiri áherslu á hvíld, nudd, heilsulind og ró.
Hvað er innifalið umfram hefðbundna Long Vita dvöl?
Meðal þess sem einkennir dvalarleiðina eru létt og auðmeltanlegt mataræði, þrjú 50 mínútna slökunarnudd á viku, einn tími með markþjálfa á viku og aðgangur að hugleiðsluherbergi. Heilsulind og hreyfing eru einnig í boði.
Hentar dvölin fólki sem hefur upplifað kulnun eða langvarandi álag?
Hún getur hentað fólki sem hefur verið undir langvarandi álagi eða upplifað kulnun, stundum kölluð burnout, og vill gefa sér verulegan tíma til hvíldar, slökunar og betri svefns. Long Vita er þó heilsuhótel og dvölin kemur ekki í stað læknismeðferðar eða faglegrar aðstoðar vegna kulnunar eða annarra heilsufarsvandamála.
Er dvalarleiðin í boði í 14 og 21 nótt?
Já. Hægt er að velja dvöl í 14 eða 21 nótt. Framboð dvalarleiðar, ráðgjafar og meðferða er staðfest fyrir valdar dagsetningar áður en dvöl er ákveðin.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið og gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til Long Vita hefur staðfest framboð.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Staðfestingargjald að upphæð 1.000 PLN er greitt beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslum fyrir dvölina.
Næsta skref

Gefðu þér tíma til að hægja almennilega á

Reiknaðu verðið með þeirri gistingu sem hentar þér eða sendu fyrirspurn og við könnum hvaða tímabil eru laus.

Reikna verð →

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.