Hollt fæði
Fullt fæði er hluti af dvölinni. Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur og hægt er að taka tillit til ýmissa þarfa.
Heilsudvöl þar sem dagurinn snýst um hollan mat, hreyfingu, útiveru og hvíld — í rólegu umhverfi við vatn og skóg Kashubia-héraðs.
Long Vita – Czapielski Młyn er heilsuhótel í Kashubia í Póllandi, við Bukrzyno Duże-vatn og umkringt skógi.
Hingað hafa gestir komið í áraraðir til að taka sér almennilega hvíld frá daglegu amstri og setja heilsu sína í fyrsta sæti.
Í stað þess að þurfa sjálf/ur að ákveða hvað eigi að borða eða hvort maður nenni að hreyfa sig er umgjörðin þegar til staðar: fullt fæði, skipulögð hreyfing, göngur, heilsulind og tími til að hvílast.
Þú þarft ekki að mæta í alla tíma sem eru í boði á Long Vita. Þegar matur, hreyfing, hvíld og góð aðstaða eru á sama stað verður auðveldara að halda góðum takti.
Fullt fæði er hluti af dvölinni. Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur og hægt er að taka tillit til ýmissa þarfa.
Hóptímar, göngur og önnur hreyfing eru í boði alla daga. Þú tekur þátt eftir eigin getu og velur hversu mikið þú vilt gera.
Sundlaug, heitur pottur, gufubað, infrared gufa og saltherbergi veita svigrúm til að slaka á milli dagskrárliða.
Engin innkaup, eldamennska eða venjulegt daglegt áreiti sem þarf að sinna. Þú ræður sjálf/ur taktinum.
Long Vita er fjölskyldurekið. Mario Maskewitz og eiginkona hans eru önnur kynslóð eigenda og taka virkan þátt í rekstrinum.
Frá árinu 2005 hefur staðurinn þróast frá þyngdarstjórnunarmiðstöð yfir í heilsuhótel þar sem næring, hreyfing, hvíld og endurheimt vinna saman.
Á Long Vita starfa reynslumiklir þjálfarar og fagaðilar sem sinna meðal annars hreyfingu, sjúkraþjálfun, nuddi, líkamsmeðferðum og heilsutengdri ráðgjöf.
Long Vita stendur við Bukrzyno Duże-vatn í grænu Kashubia-héraði í norðurhluta Póllands.
Þú færð ramma utan um daginn en þarft ekki að vera í stanslausri dagskrá. Hver og einn velur það sem hentar hverju sinni.
Sjá nánar hvernig dagurinn getur litið út →Dagurinn byrjar rólega og síðan eru ýmsir hóptímar eða göngur í boði.
Nordic Walking, styrktar- og hreyfitímar eða einfaldlega göngutúr í umhverfinu.
Hóptímar með þjálfurum, sundleikfimi og heilsulind. Eða þú getur bara notað tímann eins og þú vilt.
Kvöldin eru róleg og daglegar Aufguss-saunaathafnir eru hluti af upplifuninni á Long Vita.
Vellíðunardvölin, Classic, hentar flestum. Sérhæfðari dvalarleiðir eru fyrir þá sem vilja leggja meiri áherslu á ákveðin markmið.
Almenn vellíðan, hollt fæði, dagleg hreyfing, útivera og góð rútína. Góður kostur fyrir fyrstu dvölina.
Skoða Classic. Vellíðunardvöl →Fyrir þá sem vilja vinna markvisst að þyngdarstjórnun og byggja upp betri matar- og hreyfivenjur.
Skoða Þyngdarstjórnun →Fyrir þá sem finna fyrir langvarandi álagi eða kulnun og vilja leggja meiri áherslu á hvíld, slökun, svefn og betri rútínu.
Skoða Hvíld, streitu og betri svefn →Fyrir þá sem vilja leggja meiri áherslu á hreyfingu, styrk, úthald og próteinríkt mataræði.
Skoða Fitness. Orka og rútína →Dvalarleið með grænmetis- og ávaxtafæði, daglegri hreyfingu og reglulegum líkamsmeðferðum.
Skoða Detox. Hreinsun og endurnýjun →Fyrir þá sem vilja faglega leiðsögn við endurhæfingu með mati, einstaklingsmeðferð hjá sjúkraþjálfara og einstaklingsbundinni æfingaáætlun.
Skoða Endurhæfingu →Fyrir þá sem vilja dvelja á sama tíma og aðrir Íslendingar á Long Vita og njóta stuðnings reynslumikilla gestgjafa á staðnum.
Skoða Long Vita saman →Dæmið miðast við Vellíðunardvöl / Classic í einstaklingsherbergi. Gisting, fullt fæði, dagleg dagskrá og aðgangur að heilsulind eru innifalin. Flug er ekki innifalið.
Verð miðast við verðskrá Long Vita 2027. Greitt er í PLN. Krónuverð er áætlað og ræðst af gengi á greiðsludegi.
Einstaklingsherbergi, íbúð eða skógarhús — allt eftir því hversu mikið rými og næði þú vilt.
Skoða alla gistimöguleika →Þægilegt og hagkvæmt val fyrir þá sem vilja hafa sitt eigið rými.
Skoða nánar →Skógarhús fyrir þá sem vilja meira næði, kyrrð og vera nær náttúrunni.
Skoða nánar →Rúmbetri gisting í hótelbyggingunni fyrir þá sem vilja meiri þægindi.
Skoða nánar →Rúmbetra skógarhús fyrir þá sem vilja meira rými, kyrrð og næði.
Skoða nánar →Flestir eru einfaldlega að leita að tíma og umgjörð til að finna taktinn á ný.
Í hverjum mánuði er eitt tveggja vikna tímabil sérstaklega ætlað íslenskum gestum. Þá fara fleiri Íslendingar á sama tíma og fá aukið utanumhald frá Long Vita meðan á dvölinni stendur.
Wizz Air flýgur beint frá Keflavík til Gdansk. Icelandair flýgur einnig beint milli Keflavíkur og Gdansk. Gestir bóka flugið sjálfir og best er að bíða með flugbókun þar til dvölin á Long Vita hefur verið staðfest.
Hægt er að óska eftir akstri frá flugvellinum í Gdansk til Long Vita.
Beinar ferðir milli Keflavíkur og Gdansk.
Beint flug milli Keflavíkur og Gdansk. Flugdagar og verð fara eftir tímabilum.
Beint flug milli Keflavíkur og Gdansk.
„Ég var þungur á sál og líkama og á þeim punkti þráði ég að komast út úr þessu sleni, þessari leti á að gera eitthvað fyrir mig.“
„Hér er vel séð um mann, frábærir þjálfarar og allt sem maður þarfnast fyrir svona dvöl. Hollt fæði og farið í göngur á hverjum degi. Alls konar líkamsrækt möguleg og svo allar gerðir af gufuböðum.“
„Ég er samt léttari á mér og er miklu betri andlega ... þökk sé þessari ferð! Get ekki annað mælt hundrað og rúmlega það prósent með þessu.“
„Long Vita stóð undir sínu og rúmlega það. Ég hafði svo sem engar væntingar nema þær að hvílast þegar ég kom, en á dvöl minni hef ég borðað fjölbreyttan mat sem veitir orku allan daginn, bætt þol mitt til muna og fengið byr í seglin til þess að halda áfram þessari vegferð þegar heim er komið.“
„Frábær leið til að öðlast ró og núllstilla sig. Yndislegt umhverfi og frábært starfsfólk.“
„Þetta er frábær staður til að koma á og bæta heilsuna. Góður og hollur matur, frábært úrval af alls kyns leikfimitímum, yndislegt umhverfi og svo hjálpar mikið að gera þetta með öðrum, það virkar mjög hvetjandi.“
Nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú sendir fyrirspurn.
Ég hef sjálfur farið reglulega á Long Vita síðustu fimm ár og fer þangað að minnsta kosti einu sinni á ári. Ég þekki því staðinn af eigin raun og get hjálpað þér að velja dvöl og gistingu sem hentar því sem þú vilt fá út úr ferðinni.