Long Vita

Verð á Long Vita

Veldu þína dvöl og sjáðu verðið strax.

Reiknaðu þína dvöl

Verð á mann
Án skuldbindingar

Áætlað krónuverð · Gengi 09.10.2026 · Greitt í PLN.

Gestir slaka á í heilsulind Long Vita
Meira en bara gisting

Hvað er innifalið í dvölinni?

Long Vita er heildstæð heilsudvöl. Gisting, matur, hreyfing og aðgangur að heilsulind eru hluti af upplifuninni frá fyrsta degi.

✓
Gisting

Þú velur þá gistingu sem hentar þér best.

✓
Fullt fæði

Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur.

✓
Dagleg hreyfing

Fjölbreyttir hóptímar og daglegar Nordic Walking göngur.

✓
Heilsulind

Sundlaug, heitur pottur, gufuböð, saltherbergi og slökun.

✓
Daglegar Aufguss-gusur

Gufubaðsathafnir undir stjórn gufumeistara.

✓
Íslensk aðstoð

Aðstoð við val á dvalarleið, gistingu og undirbúning án aukakostnaðar.

Sérhæfðu dvalarleiðirnar bæta meira við. Það getur meðal annars verið einkaþjálfun, sjúkraþjálfun, næringarráðgjöf, nudd eða önnur einstaklingsmiðuð þjónusta.
Spurt og svarað

Algengar spurningar um verð

Eru verðin í íslenskum krónum föst?
Nei. Verð Long Vita er ákveðið í pólskum zloty. Krónuverðin eru áætluð miðað við gengi Seðlabanka Íslands. Dagsetning gengisins birtist undir reikninum. Endanlegt krónuverð ræðst af genginu þegar greitt er.
Er ódýrara ef tveir deila herbergi?
Já. Veldu „2 gestir – deila“ í reikninum til að sjá verð á mann og heildarverð fyrir tvo. Fyrir dvalir árið 2026 þarf að staðfesta verð fyrir tvo sérstaklega.
Hversu lengi er venjulega dvalið?
14 nætur eru aðalvalið. Reiknirinn sýnir sjálfkrafa þær dvalarlengdir sem eru í boði fyrir hverja dvalarleið — 10, 14 eða 21 nótt eftir því hvað þú velur.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið í verði dvalarinnar og gestir bóka flug sjálfir.
Geta verðin breyst?
Já. Reiknirinn notar verðskrá 2026 eða 2027 eftir völdu ári. Endanlegt verð og framboð eru staðfest áður en bókað er. Dvöl yfir áramót þarf sérstaka verðstaðfestingu.
Kostar íslenska aðstoðin eitthvað aukalega?
Nei. Aðstoð við val á dvalarleið og gistingu, undirbúning fyrir ferðina og samskipti við Long Vita kostar gestinn ekkert aukalega.

Auðun Georg Ólafsson

Tengiliður Long Vita á Íslandi

Ég hef sjálfur farið reglulega á Long Vita síðustu fimm ár og fer þangað að minnsta kosti einu sinni á ári. Ég þekki því staðinn af eigin raun og get hjálpað þér að velja dvöl og gistingu sem hentar því sem þú vilt fá út úr ferðinni.

Íslensk aðstoð án aukakostnaðar
Aðstoð við val á dvalarleið og gistingu
Góð ráð og tékklisti fyrir ferðina
Fjarstuðningur meðan dvöl stendur
Greitt beint til Long Vita. Staðfestingargjald er um 31.000 kr. (1.000 PLN) og eftirstöðvar greiðast við komu. Flug er ekki innifalið.

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.