Long Vita · vinsælasta dvalarleiðin

Classic. Vellíðunardvöl

Hollt fæði, dagleg hreyfing, útivera og heilsulind – fyrir þá sem vilja setja heilsuna í forgang.

Vinsælasta dvalarleiðin á Long Vita og hentar flestum.

Sjá verð fyrir Classic
Classic · 14 nætur · einstaklingsherbergi um 223.000 kr. 7.140 PLN Dvöl í 10 nætur er einnig í boði
Classic á Long Vita

Góður grunnur fyrir heilsudvölina

Classic er grunndvalarleið Long Vita fyrir þá sem vilja hvílast, hreyfa sig reglulega og koma sér aftur í góða rútínu. Dvölin sameinar fullt fæði, daglega hreyfingu, göngur í náttúrunni og aðgang að heilsulindinni.

Long Vita er heilsuhótel í Kashubia-héraði nálægt Gdansk í Póllandi. Classic hentar vel í fyrstu heilsuferðina, en einnig þeim sem hafa komið áður og vilja einfaldlega gefa sér tíma þar sem hollur matur, hreyfing og hvíld eru hluti af hverjum degi.

Ekki viss hvaða dvalarleið hentar? Classic er eðlilega fyrsta valið fyrir flesta. Aðrar dvalarleiðir byggja á svipuðum grunni en bæta við meiri áherslu á til dæmis þyngdarstjórnun, hreyfingu, hvíld og svefn eða endurhæfingu.
Innifalið í Classic

Dagleg hreyfing, hollt fæði og heilsulind

Classic er heildstæð vellíðunardvöl. Þú þarft ekki að setja saman einstaka þjónustu — grunnurinn að deginum er þegar til staðar og þú velur hversu mikið þú tekur þátt.

✓
Hollt og fjölbreytt fullt fæði Máltíðir eru hluti af dvölinni og skapa einfaldan ramma utan um daginn.
✓
Daglegir hóptímar Fjölbreytt hreyfing með þjálfurum og möguleiki á að velja eftir eigin getu.
✓
Daglegar Nordic Walking göngur Göngur í náttúrunni í kringum Long Vita eru hluti af daglegri dagskrá.
✓
Aðgangur að heilsulind Sundlaug, heitir pottar, saltherbergi, gufuböð og saunur.
✓
Daglegar Aufguss-gusur Gufubaðsathafnir undir stjórn gufumeistara eru hluti af upplifuninni.
✓
Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu Fyrir þá sem vilja bæta eigin æfingu við skipulagða dagskrá dagsins.
Gisting er einnig innifalin í verði dvalarinnar. Þú velur gistingu sérstaklega — frá einstaklingsherbergi upp í rúmbetri Premium-valkosti.
Sjá verð fyrir Classic eftir gistingu →
Dagurinn á Long Vita

Skipulögð dagskrá — en þú ræður ferðinni

Dagskráin á Long Vita er skipulögð frá morgni til kvölds en enginn þarf að taka þátt í öllu. Þú getur stokkið inn í tímana eftir eigin getu og dagsformi. Næringarríkur matur, hreyfing, útivera og hvíld halda utan um daginn og gera það auðveldara að komast í góða rútínu.

Þetta er ekki bootcamp. Þú velur hvort þú ferð í einn tíma, nokkra eða tekur rólegri dag.
Sjá nánar hvernig dagurinn getur litið út →
Morgunn

Morgunmatur og fyrstu tímarnir

Dagurinn byrjar með morgunmat og hóptímum fyrir þá sem vilja taka þátt strax frá morgni.

Útivera

Nordic Walking í umhverfi Long Vita

Dagleg ganga er fastur hluti af Classic og leið til að fá hreyfingu og ferskt loft inn í daginn.

Eftir hádegi

Hreyfing, heilsulind eða hvíld

Eftir hádegisverð eru fleiri hóptímar á dagskrá og svigrúm til að velja heilsulind, eigin æfingu eða einfaldlega hvíld.

Kvöld

Kvöldverður og rólegri endir á deginum

Dagleg Aufguss-gusa er í boði fyrir þá sem vilja enda daginn í heilsulindinni áður en kvöldið róast.

Tímasetningar og einstaka liðir dagskrár geta breyst milli daga og dvalartímabila.
Lengd Classic dvalar

10 eða 14 nætur?

Classic er í boði í 10 og 14 nætur. Flestir velja 14 nætur, enda gefur lengri dvöl meiri tíma til að koma sér í góða rútínu og byggja upp jákvæðar heilsuvenjur sem geta fylgt með heim.

Styttri dvöl

10 nætur

Fyrir þá sem vilja upplifa Classic en hafa minni tíma til ráðstöfunar.

Frá · einstaklingsherbergi · einn gestur
um 159.000 kr.
5.100 PLN
  • Sama grunnuppbygging og í Classic-dvalarleiðinni.
  • Fullt fæði, hreyfing, göngur og heilsulind.
  • Gisting valin sérstaklega.
Reikna Classic-verð
Verðin miðast við verðskrá Long Vita 2027. Krónuverð er sýnt fyrst til viðmiðunar en Long Vita verðleggur í PLN. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi á greiðsludegi. Verð hækkar eftir því hvaða gistingu er valin.
Classic eða önnur dvalarleið?

Classic hentar flestum. Aðrar dvalarleiðir eru fyrir þá sem vilja meiri áherslu á ákveðið markmið — eða dvelja á sama tíma og aðrir Íslendingar.

Dvalarleiðir Long Vita eiga margt sameiginlegt: hreyfingu, göngur og aðgang að heilsulind. Munurinn liggur fyrst og fremst í áherslum og viðbótarþjónustu.

Aðrar dvalarleiðir

Þegar þú vilt aðra áherslu

Veldu aðra dvalarleið ef þú vilt meiri áherslu á ákveðið markmið — eða dvelja á sama tíma og aðrir Íslendingar.

Gisting á Long Vita

Veldu svo gistinguna sem hentar þér

Classic-dvalarleiðin er sú sama óháð gistingu. Þú getur valið hagkvæmt einstaklingsherbergi, vinsælt Mini Apartment, skógarhús eða rúmbetri Premium-gistingu eftir því hversu mikið rými og næði þú vilt.

Skoða alla gistimöguleika →
Verð fyrir Classic

Hvað kostar dvölin með þeirri gistingu sem þú vilt?

Veldu gistingu í verðreikninum og Classic verður valið fyrir þig. Þú sérð síðan heildarverðið strax og getur borið saman gistimöguleika.

Reikna Classic-verð →
Spurt og svarað

Algengar spurningar um Classic á Long Vita

Hverjum hentar Classic?
Classic hentar þeim sem vilja almenna vellíðunardvöl með hollu fæði, reglulegri hreyfingu, útiveru og heilsulind. Þetta er vinsælasta dvalarleiðin og eðlilegt fyrsta val ef þú þarft ekki sérhæfðari áherslu á til dæmis þyngdarstjórnun, hvíld og svefn eða endurhæfingu.
Er Classic í boði í 10 og 14 nætur?
Já. Classic er í boði í 10 eða 14 nætur. Flestir velja 14 nætur til að gefa sér meiri tíma til að komast í góða rútínu og vinna með venjur sem geta fylgt með heim.
Er gisting innifalin í verðinu?
Já. Verðið felur í sér gistingu í þeirri gistingu sem þú velur, auk fæðis og Classic-dvalarleiðarinnar. Gistitegundin hefur áhrif á heildarverðið.
Er sama innihald í Classic óháð gistingu?
Já. Þú velur dvalarleið og gistingu sitt í hvoru lagi. Innihald Classic-dvalarleiðarinnar er því það sama hvort sem þú velur einstaklingsherbergi, Forest House, Mini Apartment eða Premium-gistingu.
Þarf ég að taka þátt í öllum tímum?
Nei. Þú velur hversu mikið þú tekur þátt og getur lagað hreyfinguna að eigin getu og dagsformi.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið í verði dvalarinnar og gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til framboð á Long Vita hefur verið staðfest.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Þegar dvöl er staðfest greiðist 1.000 PLN staðfestingargjald beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun.
Hvað ef ég veit ekki hvort Classic hentar mér?
Sendu fyrirspurn og veldu „Ég er ekki viss – vil fá ráðleggingu“ ef þú vilt bera Classic saman við aðra dvalarleið. Íslensk aðstoð við valið kostar ekkert aukalega.

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.