Classic. Vellíðunardvöl
Góð blanda af hollu fæði, daglegri hreyfingu, Nordic Walking, heilsulind og hvíld.
Skoða Classic →Reikna verð →
Dagarnir hafa ákveðinn takt — en þú ræður ferðinni. Hreyfing, góðar máltíðir, útivera, heilsulind og tími til að gera nákvæmlega ekki neitt.
Long Vita byggir daginn upp í kringum reglulegar máltíðir, hreyfingu, göngur og tíma til að slaka á.
Hóptímar og Nordic Walking eru hluti af daglegu flæði og síðan velur hver og einn hversu mikið hentar að taka þátt í þá stundina. Það er alveg jafn eðlilegt að sleppa tíma og fara í sauna, leggja sig eða sitja með bók, fara í nudd eða spjalla við aðra gesti sem hafa það sameiginlegt að vilja gefa heilsu og líðan meiri tíma.
Enginn dagur þarf að líta nákvæmlega svona út. Þetta sýnir einfaldlega hvernig matur, hreyfing, útivera og hvíld geta raðast saman yfir daginn.
Þú velur svo sjálf/ur hvort þú takir fulla dagskrá eða rólegri útgáfu af deginum.
Margir byrja daginn á léttum teygjum eða öðrum hóptíma áður en morgunverður tekur við.
Reglulegar máltíðir eru stór hluti af dvölinni og gefa deginum einfaldan og þægilegan takt.
Hægt er að fara í skipulagðan hóptíma eða taka þátt í daglegri Nordic Walking göngu í náttúrunni í kringum Long Vita.
Eftir hreyfingu er gott að setjast niður, borða í rólegheitum og hafa smá tíma fyrir sjálfa/n sig.
Hægt er að velja úr þeim tímum sem eru í boði, fara í göngutúr, nýta heilsulindina eða einfaldlega taka rólegan síðdegi.
Eftir kvöldmat velja margir heilsulindina, sauna og daglega Aufguss-gusu — eða rólegt kvöld með spjalli, bók eða prjónum.
Hugmyndin er ekki að keyra sig út. Hreyfingin er regluleg og fjölbreytt og gestir geta valið hraða og álag eftir eigin getu og dagsformi.
Þú þarft ekki að versla inn, elda eða ákveða hvað verður í matinn. Máltíðirnar koma reglulega yfir daginn og Long Vita leggur áherslu á vandað hráefni, grænmeti og ávexti og uppskriftir sem unnar eru í samstarfi næringarfræðinga og matreiðslumanna.
Það er ekkert mál að slaka á milli dagskrárliða. Stór hluti af dvölinni er heilsulindin. Þar er sundlaug, heitur pottur, gufuböð, infrared gufa og saltherbergi.
Svo er um að gera bara ekki neitt. Fara í nudd, snyrtimeðferð, lesa bók, prjóna eða setjast niður og spjalla við aðra gesti sem deila sama markmiði að bæta heilsu sína og líðan.
Það er ekkert eitt rétt tempo á Long Vita. Sumir vilja mæta í flesta tíma, ganga á hverjum degi og nýta heilsulindina á kvöldin.
Aðrir koma til að sofa betur, hreyfa sig aðeins meira en heima og fá frið frá innkaupum, matargerð og daglegu amstri.
Bæði er alveg eðlilegt. Dvölin virkar best þegar hún er löguð að manneskjunni sem er í henni — ekki öfugt.
Grunnurinn er svipaður, en dvalarleiðirnar leggja mismunandi áherslu á vellíðan, hreyfingu, þyngdarstjórnun, hvíld, endurhæfingu eða hreinsun og endurnýjun.
Góð blanda af hollu fæði, daglegri hreyfingu, Nordic Walking, heilsulind og hvíld.
Skoða Classic →Sérhæfðari dvalarleið með grænmetis- og ávaxtafæði, daglegri hreyfingu og reglulegum líkamsmeðferðum.
Skoða Detox →Fyrir þá sem vilja meiri áherslu á hreyfingu, styrk, úthald og próteinríkt mataræði.
Skoða Orku og rútínu →Fyrir þá sem vilja vinna markvisst með matarvenjur, hreyfingu og þyngdarstjórnun.
Skoða Þyngdarstjórnun →Fyrir þá sem finna fyrir langvarandi álagi eða kulnun og vilja hægja á, hvílast betur og ná aftur orku.
Skoða Endurheimt →Fyrir þá sem vilja markvissari endurhæfingu með mati, einstaklingsmeðferð hjá sjúkraþjálfara og æfingaáætlun.
Skoða Endurhæfingu →Skoðaðu verð eftir gistingu og dvalarleið eða sendu fyrirspurn um framboð og hvaða dvöl gæti hentað best. Fyrirspurnin er án skuldbindingar.
Það sem fólk vill oftast vita áður en það leggur af stað.