Detox · Long Vita í Póllandi

Detox. Hreinsun og endurnýjun

Fyrir þá sem vilja leggja sérstaka áherslu á grænmetis- og ávaxtafæði, daglega hreyfingu, líkamsmeðferðir og hvíld.

Reikna Detox-verð
Detox · 14 nætur · einstaklingsherbergi um 277.000 kr. 8.880 PLN 21 nætur eru einnig í boði
Þekkt meðal Íslendinga

Detox á Long Vita hefur lengi verið þekkt á Íslandi

Jónína Benediktsdóttir var einn af frumkvöðlum líkams- og heilsuræktar á Íslandi. Hún átti stóran þátt í að kynna Íslendingum detox-dvalir í Póllandi. Árið 2006 hóf hún að leiða hópa á heilsuhótelið Long Vita í Póllandi, sem þá gekk undir nafninu Elf, og hélt því starfi áfram um árabil.

Síðan hefur Long Vita Detox orðið vel þekkt meðal íslenskra gesta og er enn það heiti sem margir leita eftir þegar þeir kynna sér þessa tegund dvalar.

Hvað með ristilskolun?

Margir tengja enn orðið detox við ristilskolun, enda var hún áberandi hluti af umræðunni um detox-meðferðir á árum áður. Hún er ekki hluti af starfsemi Long Vita eða innifalin í þessari dvöl. Ef gestur óskar sérstaklega eftir slíku er hægt að athuga hvort læknir geti komið á hótelið og sinnt því gegn aukagjaldi.

Hreinsun og endurnýjun hentar þeim sem vilja hafa einfalt grænmetis- og ávaxtamiðað mataræði í forgrunni og nýta dvölina samhliða daglegri hreyfingu, meðferðum og hvíld.
Hvað er innifalið?

Meiri áhersla á mataræði og líkamsmeðferðir

Hreinsun og endurnýjun byggir á daglegu lífi Long Vita með hreyfingu, Nordic Walking og heilsulind, en hér er mataræðið einfaldara og líkamsmeðferðir fá stærra hlutverk.

✓
Grænmetis- og ávaxtamiðað mataræði Áhersla er á ferskt grænmeti og ávexti og léttari máltíðir yfir daginn.
✓
Tvær líkamsmeðferðir á viku Sogæðanudd og líkamsflögnun með slakandi baknuddi eru innifalin.
✓
Dagleg hreyfing og Nordic Walking Hóptímar og göngur eru hluti af daglegri rútínu á Long Vita.
✓
Heilsulind og sauna Sundlaug, heitur pottur, gufuböð, infrared gufa, saunur og saltherbergi.
✓
Daglegar Aufguss-gusur Gufumeistari stýrir gusum í útisaununni við vatnið.
✓
Valfrjáls læknisþjónusta Ef óskað er sérstaklega eftir ristilskolun er hægt að athuga hvort læknir geti komið á hótelið og sinnt henni gegn aukagjaldi.
Reikna verð fyrir Detox eftir gistingu →
Rætur mataræðisins

Byggt á grænmetis- og ávaxtaföstu dr. Ewa Dąbrowska

Grænmetis- og ávaxtafastan sem Long Vita býður upp á var þróuð fyrir meira en 15 árum með hliðsjón af aðferð dr. Ewa Dąbrowska.

Grunnhugmynd hennar er tímabundið, mjög einfalt mataræði þar sem lágsterkju grænmeti og sykursnauðir ávextir eru í forgrunni. Hreyfing er jafnframt hluti af nálguninni og eftir föstuna er gert ráð fyrir stigvaxandi aðlögun aftur að fjölbreyttara fæði.

Heilsan.is setur ekki fram læknisfræðilegar fullyrðingar um að mataræðið „hreinsi eiturefni“ eða lækni sjúkdóma. Hér er verið að lýsa þeirri dvalarleið og matarhefð sem Long Vita býður gestum sínum.
Grænmeti í aðalhlutverki

Rótargrænmeti, káltegundir, laufgrænmeti og annað lágsterkju grænmeti eru stór hluti af mataræðinu.

Ávextir í minna magni

Aðferð Dąbrowsku gerir einkum ráð fyrir sykursnauðari ávöxtum samhliða grænmetinu.

Hreyfing samhliða mataræðinu

Göngur og önnur regluleg hreyfing eru hluti af þeirri heild sem Long Vita leggur áherslu á.

Ekki bara tvær vikur og búið

Í hugmyndafræði Dąbrowsku skiptir líka máli hvernig farið er aftur yfir í fjölbreyttara fæði og hvaða venjur taka við að föstunni lokinni.

Dagurinn á Long Vita

Matur, hreyfing og hvíld

Dvalarleiðin Hreinsun og endurnýjun snýst ekki bara um það sem er á matardisknum. Dagurinn blandar saman reglulegum máltíðum, hreyfingu, líkamsmeðferðum og tíma til að slaka á.

Grænmeti og ávextir í forgrunni

Máltíðirnar eru stór hluti af dagskránni og þú þarft ekki að hugsa um innkaup eða matseld meðan á dvölinni stendur.

Meðferðir og heilsulind

Tvær líkamsmeðferðir á viku eru innifaldar og þess á milli er hægt að nýta sundlaug, heitan pott, gufuböð, saunur og saltherbergi.

Hreyfing á hverjum degi

Hóptímar og Nordic Walking eru í boði daglega og hægt er að taka þátt eftir eigin getu og dagsformi.

Sjá nánar hvernig dagurinn á Long Vita getur litið út →
14 eða 21 nætur

Verð á Long Vita Detox

Verðin hér miðast við einn gest í einstaklingsherbergi. Fleiri gistimöguleikar eru í boði á Long Vita.

21 nætur

Einstaklingsherbergi

um 416.000 kr.
13.320 PLN
  • Lengri tími í sömu dvalarleið.
  • Grænmetis- og ávaxtamiðað mataræði.
  • Dagleg hreyfing og Nordic Walking.
  • Líkamsmeðferðir og heilsulind.
Verðin miðast við verðskrá Long Vita 2027. Krónuverðin eru sýnd fyrst til viðmiðunar, en Long Vita verðleggur og tekur við greiðslu í PLN. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi á greiðsludegi. Framboð dvalarleiðar og meðferða er staðfest fyrir valdar dagsetningar áður en dvöl er ákveðin.
Detox eða Classic?

Veldu eftir því hvað þú vilt leggja áherslu á

Báðar dvalarleiðirnar byggja á daglegri hreyfingu, Nordic Walking og heilsulind. Hreinsun og endurnýjun leggur meiri áherslu á grænmetis- og ávaxtafæði og reglulegar líkamsmeðferðir.

Classic

Vellíðunardvöl

Fyrir þá sem vilja fjölbreyttara fullt fæði og almenna blöndu af hreyfingu, útiveru, heilsulind og hvíld.

  • Hollt og fjölbreytt fullt fæði.
  • Daglegir hóptímar.
  • Daglegar Nordic Walking göngur.
  • Heilsulind og Aufguss-gusur.
Spurt & svarað

Algengar spurningar um Long Vita Detox

Nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú sendir fyrirspurn.

Er Detox sama dvalarleið og Hreinsun og endurnýjun?
Já. Við höldum orðinu Detox sýnilegu vegna þess að það er það heiti sem margir Íslendingar þekkja. Hreinsun og endurnýjun er íslenska heitið sem heilsan.is notar yfir dvalarleiðina.
Á þetta rætur að rekja til dr. Ewa Dąbrowska?
Já. Long Vita segir að grænmetis- og ávaxtafastan hafi verið þróuð þar fyrir meira en 15 árum með hliðsjón af grænmetis- og ávaxtaföstu dr. Ewa Dąbrowska.
Er ristilskolun innifalin?
Nei. Hún er ekki hluti af starfsemi Long Vita eða innifalin í dvölinni. Ef óskað er sérstaklega eftir slíkri þjónustu er hægt að athuga hvort læknir geti komið á hótelið og sinnt henni gegn aukagjaldi.
Hvaða líkamsmeðferðir eru innifaldar?
Tvær líkamsmeðferðir á viku eru innifaldar: sogæðanudd og líkamsflögnun með slakandi baknuddi.
Þarf ég að taka þátt í allri hreyfingunni?
Nei. Hægt er að taka þátt eftir eigin getu og dagsformi. Daglegir hóptímar og Nordic Walking eru í boði en dvölin á ekki að verða kapphlaup.
Er flug innifalið?
Nei. Flug er ekki innifalið og gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til Long Vita hefur staðfest framboð.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Staðfestingargjald að upphæð 1.000 PLN er greitt beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslum fyrir dvölina.
Næsta skref

Viltu sjá verðið með þeirri gistingu sem þú myndir velja?

Í verðreikninum velur þú gistingu og sérð Detox-verðið strax. Þú getur síðan athugað framboð án skuldbindingar.

Reikna Detox-verð →

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.