Reynsla gesta · Long Vita í Póllandi

Reynsla Íslendinga af Long Vita

Vel yfir þúsund Íslendingar hafa dvalið á Long Vita frá árinu 2003. Markmið flestra er að bæta heilsu sína og komast á upphafsreit til að tileinka sér jákvæðar og hollar venjur í daglegu lífi.

Sauna og heilsulind á Long Vita
Reynslusaga · Magnús Steindórsson

„Ég fór heim sem nýr maður“

„Ég fór í þessa ferð til Póllands því ég var hreinlega búinn á því á líkama og sál. Vinnan mín er líkamlega erfið og ég fann að ég þurfti að gera eitthvað róttækt til að ná vopnum mínum aftur. Ég missti nokkur kíló, en það sem skipti mestu máli var orkan sem ég fékk aftur. Þetta er ekki bara frí – þetta er raunveruleg fjárfesting í eigin heilsu og vellíðan.“

Magnús Steindórsson
Þorsteinn Gunnar Jónsson fyrir og eftir breytingar á lífsstíl
Þorsteinn Gunnar náði miklum árangri á tveimur vikum á Long Vita og hélt áfram hollum lífsstíl eftir að heim var komið. Fyrri myndin var tekin 12. apríl og sú síðari 24. september 2025.
Mælir með

„Þessar tvær vikur hafa verið mér mikil betrumbót“

Þorsteinn Gunnar Jónsson

„Ég var þungur á sál og líkama og á þeim punkti þráði ég að komast út úr þessu sleni, þessari leti á að gera eitthvað fyrir mig. En eftir að hafa farið niður á við andlega þá fór líkaminn í hina áttina og þetta gekk ekki.

Ég leitaði að heilsuhótelum og -stöðum til að heimsækja þar til ég fann heilsan.is og Long Vita. Auðun svaraði frekar fljótt og gaf mér góðar upplýsingar. Ég ákvað að slá til og sé ekki eftir því!

Smá taugastrekktur er nær dró en Auðun var í góðu sambandi og þessar tvær vikur hafa verið mér mikil betrumbót. Hér er vel séð um mann, frábærir þjálfarar og allt sem maður þarfnast fyrir svona dvöl. Hollt fæði og farið í göngur á hverjum degi. Alls konar líkamsrækt möguleg og svo allar gerðir af gufuböðum.

Skemmtilega lítil sundlaug þar sem sundleikfimi fer fram, hægt að fá nudd, fót- og handsnyrtingu o.s.frv. Síðan er umhverfið ævintýralegt, vatnið við hótelið er svo fallegt og að fara í sána á kvöldin og svo ofan í vatnið ... það er himneskt!

Ég er enn of þungur og held bara áfram þessa leið eftir dvölina hér. Ég er samt léttari á mér og er miklu betri andlega ... þökk sé þessari ferð! Get ekki annað mælt hundrað og rúmlega það prósent með þessu. Takk fyrir mig, Auðun og heilsan.is. Ég stefni algjörlega á að koma aftur!“

Umsagnir gesta

Ummæli eftir dvölina

“
„Long Vita stóð undir sínu og rúmlega það. Ég hafði svo sem engar væntingar nema þær að hvílast þegar ég kom, en á dvöl minni hef ég borðað fjölbreyttan mat sem veitir orku allan daginn, bætt þol mitt til muna, notið útiveru í dásamlegu umhverfi og fengið byr í seglin til þess að halda áfram þessari vegferð þegar heim er komið.“
Birna Rún Arnarsdóttir
“
„Þetta er frábær staður til að koma á og bæta heilsuna. Góður og hollur matur, frábært úrval af alls kyns leikfimitímum, yndislegt umhverfi og svo hjálpar mikið að gera þetta með öðrum, það virkar mjög hvetjandi.“
Guðrún K. Ólafsdóttir
“
„Frábær leið til að öðlast ró og núllstilla sig. Yndislegt umhverfi og frábært starfsfólk.“
Berglind Björk Jónsdóttir
“
„Dásamlegur staður í undur fallegu og veðursælu umhverfi, ef þú vilt bæta lífsstílinn og hvíla þig á öllu áreiti, þá er þetta rétti staðurinn.“
Margrét Kjartansdóttir
“
„Frábær leið til að draga sig út úr daglegu amstri, borða hollan mat og hreyfa sig.“
Þuríður Hallgrímsdóttir
“
„Góð leið til að koma sér í gott form og hvíla sig í fallegu umhverfi og kynnast nýju fólki.“
Elísabet Gestsdóttir
“
„Besta vatnsþrek sem ég hef farið í, algjörlega frábærir tímar. Nú er ég komin í hóp þeirra sem koma aftur og aftur.“
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir
Í umsögnunum

Það sem gestir nefna aftur og aftur

Hollur matur, hreyfing, fallegt umhverfi, hvíld og góður félagsskapur eru meðal þess sem gestir nefna oftast.

✓
Dagleg rútína Máltíðir, hreyfing og slökun fá sinn stað í deginum án þess að allt þurfi að vera kapphlaup.
✓
Hreyfing eftir eigin getu Göngur, hóptímar og aðstaða til að hreyfa sig reglulega meðan á dvölinni stendur.
✓
Hvíld frá daglegu amstri Matur, dagskrá og heilsulind eru á staðnum svo auðveldara er að beina athyglinni að eigin líðan.
✓
Samvera og hvatning Fleiri en einn gestur nefnir að félagsskapurinn og það að gera þetta með öðrum hafi verið jákvæður hluti af dvölinni.
Næsta skref

Viltu kanna hvort Long Vita henti þér?

Skoðaðu dvalarleiðirnar og verðið eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurnin er ekki bindandi og þú þarft ekki að hafa valið dvalarleið eða gistingu.

    Fyrirspurn án skuldbindingar


    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.


    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?

    Veldu Long Vita Saman tímabil

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum
    eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag


    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.

    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.