Endurhæfing · Long Vita í Póllandi

Endurhæfing með stuðningi

Fyrir fólk sem vill faglega leiðsögn við endurhæfingu eftir bæklunaraðgerð, vegna lið- eða bakvandamála, íþróttameiðsla eða þegar markmiðið er að ná aftur styrk, hreyfigetu og öryggi í hreyfingu.

Reikna verð eftir gistingu
Sjá hvernig Endurhæfingin virkar ↓
Lengd 14 nætur Tími til að vinna markvisst í endurhæfingu.
Við komu Faglegt mat Greiningarviðtal og mat hjá yfirsjúkraþjálfara.
Innifalið Fjórir tímar hjá sjúkraþjálfara 55 mínútur hver hjá löggiltum sjúkraþjálfara.
Markviss endurhæfing

Þú ferð heim með skýra leið áfram

Endurhæfing á Long Vita snýst um meira en fjóra meðferðartíma hjá sjúkraþjálfara. Fyrst er metið hvernig þú hreyfir þig og hvað þarf að vinna með. Síðan er meðferðin notuð til að vinna markvisst með vandamálið og byggja upp einstaklingsbundnar æfingar sem þú getur stundað meðan á dvölinni stendur og haldið áfram með eftir heimkomu.

Endurhæfing á Long Vita
Faglegt mat, einstaklingsmiðuð meðferð og æfingar sem eiga að nýtast áfram þegar heim er komið.

Dagskráin er unnin af löggiltum sjúkraþjálfurum á Long Vita.

Svona virkar þetta

Frá fyrsta mati að æfingum sem þú tekur með þér heim

Dagskráin byrjar áður en þú kemur til Póllands og er síðan aðlöguð að stöðu þinni eftir faglegt mat á staðnum.

1

Fyrir komu

Rafrænt upphafssamtal við Mario Maskewitz, framkvæmdastjóra Long Vita, þar sem farið er yfir grunnstöðu, sögu og helstu markmið dvalarinnar.

2

Mat við komu

Við komu fer fram greiningarviðtal og faglegt mat hjá yfirsjúkraþjálfara Long Vita. Þar er meðal annars farið yfir hreyfimynstur og áherslur endurhæfingarinnar.

3

Fjórir tímar hjá sjúkraþjálfara

Innifaldir eru fjórir 55 mínútna einstaklingsmeðferðartímar hjá löggiltum sjúkraþjálfara, tveir á hvorri viku.

4

Æfingaáætlun

Sjúkraþjálfarinn setur saman einstaklingsbundnar æfingar til að vinna með milli tíma, meðan á dvölinni stendur og áfram eftir heimkomu.

4
einstaklingsmeðferðartímar
Hver tími er 55 mínútur. Tveir tímar eru skipulagðir á hvorri viku og meðferðin er hjá löggiltum sjúkraþjálfurum.
Einstaklingsmiðað

Ekki sama lausnin fyrir alla

  • Mat á hreyfimynstri og því sem getur verið að takmarka hreyfigetu.
  • Markviss sjúkraþjálfun út frá stöðu og markmiðum hvers gests.
  • Æfingar sem hægt er að vinna með sjálfstætt milli tíma.
  • Áætlun sem nýtist áfram eftir að dvölinni lýkur.
Reikna verð fyrir Endurhæfingu eftir gistingu →
Fyrir hverja?

Fyrir þig sem þarft meiri stuðning

Endurhæfingin hentar fólki sem er komið á þann stað að virk hreyfing og endurhæfing er viðeigandi, en vill faglega leiðsögn til að komast áfram.

1

Eftir bæklunaraðgerð

Þegar læknir hefur heimilað virka endurhæfingu og þú vilt halda áfram að byggja upp hreyfigetu og styrk.

2

Liðvandamál

Fyrir fólk sem þarf skipulagða leiðsögn vegna stirðleika, skertrar hreyfigetu eða viðvarandi liðvandamála.

3

Bak og líkamsstaða

Þegar markmiðið er að vinna með hreyfimynstur, líkamsbeitingu og æfingar sem styðja við betri virkni.

4

Íþróttameiðsli

Fyrir þá sem eru að jafna sig eftir íþróttameiðsli og vilja markvissa leiðsögn til að byggja upp styrk og hreyfigetu á ný.

5

Styrkur og hreyfigeta

Þegar þú þarft stuðning til að ná aftur virkni, styrk og öryggi í hreyfingu.

Æfingar sem fylgja þér heim

Þú tekur æfingarnar með þér heim

Mikilvægur hluti dvalarinnar er að læra hvað þú getur gert sjálf/ur. Sjúkraþjálfarinn setur saman æfingar sem miðast við þína stöðu og þú færð tíma meðan á dvölinni stendur til að æfa þær í rólegu umhverfi.

Æfingar lagaðar að þínum styrk og hreyfigetu.
Leiðréttingar á hreyfimynstri og líkamsbeitingu.
Skýrari leið til að halda áfram eftir heimkomu.
Sjúkraþjálfari vinnur með bak og axlir
Hreyfing á Long Vita
Mikilvægt að vita

Þetta hentar ekki öllum

Long Vita er gamalgróið hótel sem á ríka sögu en húsnæðið er ekki hindrunarlaust. Endurhæfingin er því ætluð fólki sem getur farið sjálfstætt um hótelið, innan þess og utan.

!
Stigar og aðgengi Dvölin hentar ekki gestum með verulega skerta hreyfigetu eða þeim sem geta ekki farið sjálfstætt upp og niður stiga.
!
Bráðir fylgikvillar Gestir með bráða fylgikvilla eftir aðgerð eða ógróin sár ættu að bíða þar til læknir hefur heimilað virka endurhæfingu.
!
Óstöðugt heilsufar Endurhæfingin á Long Vita er ekki ætluð fólki með óstöðugt læknisfræðilegt ástand sem krefst sjúkrahúss- eða sérhæfðrar læknisþjónustu.
Fyrir ferðina

Sendu viðeigandi upplýsingar áður en þú kemur

Long Vita biður gesti að senda þær læknisfræðilegu upplýsingar sem skipta máli fyrir endurhæfinguna svo sjúkraþjálfarar geti undirbúið sig og aðlagað nálgunina að þörfum hvers gests.

  • Viðeigandi sjúkrasaga.
  • Samantekt úr MRI eða röntgenrannsókn ef hún liggur fyrir.
  • Læknisvottorð eða samþykki læknis þegar það á við.
Long Vita heilsuhótelið og umhverfið í Póllandi
Tími til að vinna með líkamann

Tvær vikur til að einbeita þér að endurhæfingunni

Á Long Vita færðu rými til að einbeita þér að endurhæfingunni í tvær vikur. Milli einstaklingsfundanna geturðu unnið með ráðlagðar æfingar, hreyft þig eftir getu og hvílst í rólegu umhverfi. Markmiðið er að skapa samfellu svo endurhæfingin verði hluti af deginum í stað þess að týnast í daglegu amstri.

Sjá hvernig dagurinn á Long Vita getur litið út →
Verð 2026 · 14 nætur

Endurhæfing frá um 270.000 kr.

Dagskráin er í boði sem dvöl í 14 nætur. Hér eru þrír vinsælir gistimöguleikar fyrir einn gest. Fleiri herbergistegundir eru í boði.

Forest House

14 nætur

um 275.000 kr.
8.320 PLN

Verð fyrir einn.

Mini Apartment

14 nætur

um 316.000 kr.
9.580 PLN

Verð fyrir einn.

Premium Forest House

14 nætur

um 316.000 kr.
9.580 PLN

Verð fyrir einn.

Reikna verð eftir gistingu Skoða gistingu
Verð í íslenskum krónum eru áætluð miðað við 1 PLN = 33 kr. og námunduð. Endanlegt krónuverð ræðst af gengi á greiðsludegi. Staðfestingargjald að upphæð 1.000 PLN er greitt beint til Long Vita og eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslu fyrir dvölina.
Í boði frá janúar til loka nóvember Enginn fastur hámarksfjöldi er skilgreindur, en framboði er stýrt eftir getu sjúkraþjálfara til að tryggja einstaklingsþjónustu.
Framboð staðfest hverju sinni
Ekki alveg það sem þú þarft?

Aðrar leiðir á Long Vita

Ef þú þarft ekki markvissa sjúkraþjálfun gæti önnur dagskrá hentað betur.

Spurt & svarað

Algengar spurningar um Endurhæfingu á Long Vita

Nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú sendir fyrirspurn.

Hvað er innifalið í endurhæfingunni?
Innifaldir eru fjórir 55 mínútna einstaklingsmeðferðartímar hjá löggiltum sjúkraþjálfara, tveir á hvorri viku. Rafræna upphafssamtalið fyrir komu og mat yfirsjúkraþjálfara við komu eru aðskildir frá þessum fjórum meðferðartímum.
Fer fram mat áður en meðferð hefst?
Já. Fyrir komu fer fram rafrænt upphafssamtal og við komu fer fram greiningarviðtal og mat með yfirsjúkraþjálfara Long Vita.
Fæ ég æfingar til að halda áfram með heima?
Já. Eitt af markmiðum dagskrárinnar er að setja saman einstaklingsbundnar æfingar sem þú getur unnið með meðan á dvölinni stendur og haldið áfram með eftir heimkomu.
Hentar dvölin eftir aðgerð?
Hún getur hentað eftir bæklunaraðgerð þegar fyrstu vikur eftir aðgerð eru liðnar og læknir hefur heimilað virka endurhæfingu. Dvölin hentar ekki við bráða fylgikvilla, ógróin sár eða óstöðugt heilsufar.
Er Long Vita að fullu aðgengilegt fyrir fólk með skerta hreyfigetu?
Nei. Long Vita er gamalgróið hótel með stigum og húsnæðið er ekki hindrunarlaust. Endurhæfingin hentar því ekki gestum með verulega skerta hreyfigetu eða þeim sem geta ekki farið sjálfstætt upp og niður stiga.
Þarf ég að senda læknisgögn fyrir ferðina?
Long Vita biður um viðeigandi sjúkrasögu og, þegar það á við, samantektir úr MRI eða röntgenrannsóknum og læknisvottorð eða samþykki læknis. Það hjálpar sjúkraþjálfurunum að undirbúa einstaklingsmiðaða nálgun.
Er þetta sjúkrahús eða endurhæfingarstofnun?
Nei. Long Vita er heilsuhótel sem býður endurhæfingardagskrá með löggiltum sjúkraþjálfurum. Gestir sem þurfa sjúkrahúsþjónustu eða sérhæfða læknisfræðilega umönnun þurfa að leita í viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Er flug innifalið?
Nei. Gestir bóka flug sjálfir. Bíddu með að bóka flug þar til Long Vita hefur staðfest framboð á þeirri dvöl sem þú óskar eftir.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Staðfestingargjald að upphæð 1.000 PLN er greitt beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslum fyrir dvölina.
Fyrsta skrefið

Hver er þín þörf?

Sendu fyrirspurn um Endurhæfingu og stuttar upplýsingar um hvað þú vilt fá út úr dvölinni. Heilsan.is aðstoðar með framboð og samskipti við Long Vita án aukakostnaðar.

Reikna verð fyrst →

    Veldu tímabil sem hentar þér.
    Sendu fyrirspurn og fáðu staðfest framboð hjá Long Vita innan sólarhrings. Engin skuldbinding.





    Hvað á að gera ef valið er laust?




    Má hafa samband í síma?


    Sending getur tekið nokkrar sekúndur. Ýttu aðeins einu sinni á hnappinn.


    Greiðsla fyrir dvölina fer beint til Long Vita.
    Þegar dvöl er staðfest greiðist 1.000 PLN staðfestingargjald
    og eftirstöðvar við komu á Long Vita.