Hópferðir á Long Vita

Heilsuferð til Póllands · íslensk tímabil á Long Vita

Long Vita Saman – heilsuferð til Póllands

Veldu tveggja vikna heilsudvöl á Long Vita á sama tíma og aðrir Íslendingar — með hollu fæði, hreyfingu, heilsulind og stuðningi frá reynslumiklum gestgjöfum sem tekið hafa á móti vel yfir þúsund Íslendingum frá 2003.

Hvað er innifalið?
Förum saman

Heilsuferð til Póllands – á eigin vegum með öðrum Íslendingum

Long Vita Saman er heilsuferð til Póllands fyrir fólk sem vill ferðast á eigin vegum og ráða sér sjálft en vill njóta stuðnings og félagsskapar annarra Íslendinga á staðnum. Þú velur dvalarleið, gistingu og hversu mikið þú tekur þátt í dagskránni.

Dvölin fer fram á Long Vita í Póllandi, heilsuhóteli í Kashubia-héraði þar sem matur, hreyfing, útivera, heilsulind og hvíld eru á sama stað. Þetta er ekki hefðbundin skipulögð hópferð þar sem allir fylgja sömu dagskrá dag frá degi heldur er mikill sveigjanleiki fyrir hvern og einn.

Long Vita heilsudvöl í tvær vikur

Hvað er innifalið í heilsudvölinni?

Á Long Vita í Póllandi færðu umgjörð utan um heilsuna í tvær vikur: fullt fæði, daglega hreyfingu, útiveru, heilsulind og tíma til að hvílast. Nákvæmt innihald fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur.

✓

Fullt fæði

Allar máltíðir eru innifaldar. Mataræðið fer eftir þeirri dvalarleið sem þú velur.

✓

Dagskrá með þjálfurum

Fjölbreytt dagskrá með þjálfurum frá morgni og fram á kvöld. Þú velur hvaða tíma þú sækir.

✓

Gestgjafar

Reynsla, móttaka og stuðningur frá gestgjöfum sem þekkja þarfir Íslendinga vel.

✓

Heilsulind

Sundlaug, heitur pottur, gufuböð, saltherbergi og aðstaða til slökunar.

+

Meira ef þú vilt

Möguleiki er á sundleikfimi og nuddi gegn vægu aukagjaldi, eftir framboði og dvalarleið.

Gestgjafinn

Í öruggum höndum

Mario Maskewitz og eiginkona hans eru önnur kynslóð eigenda Long Vita og halda áfram þeirri fjölskylduhefð að sameina persónulega gestrisni, heilsu og vellíðan. Mario hefur mikla reynslu af íslenskum gestum og hefur tekið á móti þeim um árabil.

Við komu færð þú kynningu á staðnum, aðstöðunni og hvernig dvölin virkar svo þú komist fljótt í réttan takt.

Mario leggur mikla áherslu á persónulega og greiðvikna þjónustu ásamt starfsfólki sínu. Á meðan á dvölinni stendur heldur hann tvo fræðandi fyrirlestra um langlífi, lífsstíl og þær venjur sem geta stutt við betri heilsu til lengri tíma.

✓
Móttaka og kynning Við komu er farið yfir staðinn, aðstöðuna og það helsta sem gott er að vita áður en dvölin hefst.
✓
Reynsla og yfirsýn Áralöng reynsla af rekstri Long Vita og móttöku íslenskra gesta nýtist við ráðgjöf og þjónustu meðan á dvölinni stendur.
✓
Tveir fyrirlestrar Mario fjallar um langlífi, lífsstíl og hvernig hægt er að taka góðar venjur með sér heim.
✓
Persónuleg þjónusta Áhersla er lögð á greiðvikni, gott aðgengi að starfsfólki og að gestir fái aðstoð þegar hennar er þörf.
Teymið á Long Vita

Fagfólkið sem leiðir þig áfram

Á Long Vita starfar reynslumikið fagfólk með ólíka sérhæfingu í hreyfingu, næringu, þjálfun og vellíðan. Þú velur þau námskeið og þá hreyfingu sem henta þínum markmiðum, getu og dagsformi.

Klínísk næringarfræði & einkaþjálfun

Wojtek Sankiewicz

Klínískur næringarfræðingur, menntaður við Læknaháskólann í Gdansk, og einkaþjálfari. Hann sameinar næringarfræði og hreyfingu og hefur sérstaka reynslu af að vinna með fólki sem situr mikið í daglegu lífi og glímir við bakverki. Wojtek er einnig kraftlyftingaþjálfari og leggur áherslu á styrktarþjálfun sem mikilvægan grunn að góðu líkamlegu formi.

Íþróttafræði & fjölbreytt þjálfun

Catherine Senyk

Íþróttafræðingur og þjálfari, menntuð við Íþróttaháskólann í Katowice með áherslu á leiðréttandi leikfimi, ferðaþjónustu og útivist. Hún hefur starfað á líkamsræktarstöðvum víða um Pólland og hefur meðal annars réttindi í Pilates, TRX, Zumba, Les Mills Body Pump, Healthy Spine, virkniþjálfun og sundleikfimi.

Líkamsrækt, dans & sundleikfimi

Svetlana Zharikova

Reyndur þjálfari í líkamsrækt og sundleikfimi sem hefur starfað við hreyfingu og þjálfun frá 1989. Hún lauk háskólanámi í lífeðlisfræði manna og dýra og hefur einnig lokið grunnnámi í ballett. Svetlana hefur meðal annars réttindi í Zumba Fitness, Zumba Gold, TBC, Pilates, step og sundleikfimi og kennir einnig þjóðdansa og samkvæmisdansa.

Íþróttafræði, vellíðunarþjálfun & sjúkraþjálfun

Victoria Grota

Íþróttafræðingur með sérhæfingu í andlegri þjálfun og vellíðunarþjálfun og stundar jafnframt nám í sjúkraþjálfun. Hún leggur áherslu á heildræna nálgun þar sem hreyfing, andlegur undirbúningur og þættir úr sjúkraþjálfun vinna saman. Áherslan er á örugga og einstaklingsmiðaða hreyfingu sem skilar bæði árangri og ánægju.

Þú ræður ferðinni. Þú getur farið í þá tíma sem eru innifaldir og henta þér, tekið þátt í daglegum göngum, nýtt heilsulindina eða tekið rólegri dag. Þátttaka miðast við eigin getu og dagsform.
Reynsla íslensks gests

„Þessar tvær vikur hafa verið mér mikil betrumbót“

„Ég kom hingað þungur á sál og líkama en fer héðan léttari á mér og miklu betri andlega. Hér er hugsað vel um mann, frábærir þjálfarar, hollur matur og nóg af hreyfingu, göngum og slökun.“
Þorsteinn Gunnar Jónsson
Lesa fleiri reynslusögur →

„Frábær leið til að draga sig út úr daglegu amstri, borða hollan mat og hreyfa sig.“

Þuríður Hallgrímsdóttir

„Dásamlegur staður í undur fallegu og veðursælu umhverfi, ef þú vilt bæta lífsstílinn og hvíla þig á öllu áreiti, þá er þetta rétti staðurinn.“

Margrét Kjartansdóttir

„Ég missti nokkur kíló, en það sem skipti mestu máli var orkan sem ég fékk aftur.“

Magnús Steindórsson

Auðun Georg Ólafsson

Tengiliður Long Vita á Íslandi

Ég er tengiliður Long Vita á Íslandi og aðstoða þig við að velja dvalarleið og gistingu, kanna framboð og undirbúa dvölina. Aðstoðin er þér að kostnaðarlausu og greiðslur fyrir dvölina fara beint til Long Vita.

Íslensk aðstoð án aukakostnaðar
Aðstoð við val á dvalarleið og gistingu
Góð ráð og tékklisti fyrir ferðina
Fjarstuðningur meðan dvöl stendur
Spurt og svarað

Algengar spurningar um heilsuferð til Póllands og Long Vita Saman

Er Long Vita Saman hefðbundin hópferð til Póllands?
Nei. Long Vita Saman er heilsuferð til Póllands þar sem þú ferð á sama tíma og aðrir Íslendingar en heldur frelsi einstaklingsferðar. Hver gestur velur sína dvalarleið og gistingu og tekur þátt í dagskrá eftir eigin áhuga og getu. Þú nýtur því félagsskapar, móttöku og stuðnings á staðnum án þess að þurfa að fylgja hópnum allan daginn.
Hvað er Long Vita Saman?
Long Vita Saman eru valin tveggja vikna tímabil á Long Vita þar sem fleiri Íslendingar dvelja á staðnum á sama tíma. Þú bókar þína eigin heilsudvöl, velur dvalarleið og gistingu og ræður dagskránni, en hefur aðra Íslendinga og reynslumikla gestgjafa á staðnum.
Hvar er Long Vita í Póllandi?
Long Vita er í Kashubia-héraði í norðurhluta Póllands, í rólegu umhverfi við vatn og skóg. Það er um 45 km frá flugvellinum í Gdansk og hægt er að óska eftir akstri frá flugvellinum gegn vægu aukagjaldi.
Get ég farið án ferðafélaga?
Já. Long Vita Saman getur hentað sérstaklega vel þeim sem vilja ferðast einir en finnst gott að hafa aðra Íslendinga á staðnum á sama tíma.
Þurfa allir að velja sömu dvalarleið?
Nei. Hver gestur velur þá dvalarleið og gistingu sem hentar honum best. Því geta gestir á sama tímabili haft mjög ólíkar áherslur í sinni dvöl.
Er flug innifalið?
Nei. Gestir bóka flug sjálfir þegar dvölin hefur verið staðfest. Bíddu með að bóka flug þar til dvölin á Long Vita hefur verið staðfest.
Hvernig kemst ég frá flugvellinum á Long Vita?
Hægt er að óska eftir akstri frá flugvellinum í Gdansk að Long Vita gegn vægu aukagjaldi. Vegalengdin er um 45 km.
Þarf ég að taka þátt í allri dagskránni?
Nei. Dagskráin er sveigjanleg og hver og einn velur þátttöku eftir eigin áhuga, getu og dagsformi. Þú getur farið í hóptíma, Nordic Walking, heilsulindina eða tekið rólegri dag.
Hvernig er greitt fyrir dvölina?
Þegar dvölin hefur verið staðfest greiðist 1.000 PLN staðfestingargjald beint til Long Vita. Eftirstöðvar eru greiddar beint til Long Vita við komu og innritun. Heilsan.is tekur ekki við greiðslu fyrir dvölina en aðstoðar þig án endurgjalds við undirbúning og er til staðar með fjaraðstoð ef á þarf að halda meðan á dvöl stendur.

    Fyrirspurn án skuldbindingar

    Kannaðu framboð og veldu þína dvöl.

    Veldu ferðatímabil, dvalarleið og gistingu.
    Ég fer yfir óskirnar og sendi þér upplýsingar
    um framboð, verð og næstu skref.

    Hvernig viltu ferðast?


    Veldu Long Vita Saman tímabil

    eða skoðaðu fleiri tímabil 2027

    Hvenær viltu fara?

    Veldu eitt af næstu föstu tímabilum eða þinn eigin upphafsdag.

    eða veldu eigin upphafsdag

    Komudagar eru fimmtudagar og laugardagar.
    Dagatalið sýnir einnig aðra daga en tekur
    aðeins við þessum tveimur vikudögum.



    Ef verð og framboð henta, hvað viltu gera næst?





    Hinkraðu í augnablik eftir að þú smellir á „Kanna framboð“.


    Ekki loka síðunni fyrr en staðfestingarsíðan birtist.
    Það getur tekið nokkrar sekúndur að senda fyrirspurnina.


    Fyrirspurnin er án skuldbindingar.
    Ég svara persónulega og aðstoða þig
    við undirbúning og bókun án aukakostnaðar.