Líkami

Bakverkir: Samsett meðferð skilaði 84% meiri árangri

Sérsniðin hreyfimeðferð ásamt hugrænni atferlismeðferð reyndist skila bestum árangri við langvinnum, ósértækum mjóbaksverkjum í stórri safngreiningu. Langvinnir bakverkir geta haft veruleg áhrif á daglegt líf, svefn og hreyfigetu. Meðferð við bakverkjum þarf oft að taka mið af fleiri þáttum en aðeins líkamanum, enda geta ótti við hreyfingu, streita og neikvæðar væntingar við meðferð einnig haft […]

Næring

Hætturnar við að borða of hratt

Ert þú ein(n) af þeim sem skóflar í sig matnum eins og þú sért við rásmarkið í 100 metra hlaupi? Það eitt að borða hratt þýðir ekki að þú þróir með þér alvarlegan sjúkdóm. Rannsóknir hafa þó tengt hraðan matarhraða við meiri orkuinntöku, hærri líkamsþyngd og verri mælingar á efnaskiptaheilsu. Flestar þessara rannsókna sýna tengsl […]

Líkami

Fjórar teygjubandsæfingar sem þú getur gert heima

Stundum er ekki tími til að keyra í ræktina, finna bílastæði, skipta um föt, æfa, finna bílinn aftur og keyra heim. Þá er hentugt að eiga teygjuband og geta tekið stutta styrktaræfingu heima. Teygjubönd eru ódýr, taka lítið pláss og auðvelt er að hafa þau með í ferðalagið. Nýjar leiðbeiningar American College of Sports Medicine […]

Sál

Betri fjármálaheilsa með fimm einföldum venjum

Fjármálaheilsa snýst ekki bara um hversu háar tekjurnar eru. Daglegar venjur, ákvarðanir og það hvernig við hugsum um peninga geta einnig haft veruleg áhrif. Það þarf ekki alltaf flókið Excel-skjal með sautján útgjaldaflokkum. Stundum getur ein lítil breyting gert meiri gagn en stórkostlegt fjárhagsátak sem endist fram á fimmtudag. 1. Gerðu dagleg útgjöld sýnilegri Það […]

Líkami

Korters ganga á dag getur skipt miklu

Það þarf ekki alltaf langa æfingu, ræktarkort eða nýjan íþróttafatnað til að koma meiri hreyfingu inn í daginn. Stuttur göngutúr getur verið einföld leið til að byrja — sérstaklega fyrir fólk sem hreyfir sig lítið. Í stórri rannsókn frá Taívan var fólk sem stundaði að meðaltali um 15 mínútna hreyfingu á dag með 14% minni […]

Sál

Hvað sérð þú fyrst? Myndblekkingar sem plata heilann

Það er alltaf gaman að taka sér smá hlé og skoða myndir sem hægt er að túlka á fleiri en einn hátt. Á samfélagsmiðlum fylgja slíkum myndum gjarnan fullyrðingar um að það sem þú sérð fyrst sýni hvort þú sért rökfastur, tilfinningaríkur, sjálfstæður eða skapandi. Það er sniðugt clickbait — en ekki áreiðanlegt persónuleikapróf. Nýleg […]

Líkami Næring

Af hverju langar okkur í snarl seint á kvöldin?

Klukkan nálgast miðnætti og þú ert við það að skríða upp í rúm. Þá byrjar súkkulaðikexpakkinn allt í einu að kalla á þig úr eldhúsinu. Eða síðasta pizzusneiðin, sem virtist alls ekki áhugaverð klukkutíma fyrr. Hvað gerðist? Þú sem varst í nánast fullkomnu jafnvægi allan daginn. Kvöldsvengd getur átt sér ýmsar skýringar. Innri líkamsklukkan, svefn, […]

Hollur matur
Líkami Næring

Borðaðu færri kaloríur með þessum einföldu ráðum

Það sem þú borðar skiptir máli, en umhverfið í kringum máltíðina getur líka haft áhrif. Skammtastærðir, sjónvarpið, umbúðirnar, félagsskapurinn og jafnvel það hvort maturinn stendur fyrir framan þig geta breytt því hversu mikið endar ofan í þér. Markmiðið er ekki að gera eldhúsið að rannsóknarstofu eða telja hverja einustu hitaeiningu. Litlar breytingar geta þó hjálpað […]

Líkami

Fótbolti og heilsa: styrkir þol, vöðva og bein

Fótbolti er líklega ein aðgengilegasta hópíþrótt sem til er. Það þarf bolta, nokkur mörk — eða tvær peysur á jörðinni — og nægilegt pláss til að hlaupa. Leikurinn sameinar göngu, skokk, spretti, stefnubreytingar og stuttar hvíldir. Þess vegna getur venjulegur fótbolti með vinum veitt fjölbreytta og skemmtilega líkamsþjálfun. Fyrir marga skiptir það töluverðu máli. Hreyfing […]

Líkami Næring

Af hverju grennist ég ekki? Fimm mögulegar ástæður

Af hverju í fjáranum lækkar talan á vigtinni stundum ekki þótt við séum að borða betur, hreyfa okkur og leggja okkur virkilega fram? Fyrst ber að hafa eitt á hreinu: Vigtin mælir ekki eingöngu líkamsfitu. Hún mælir líka vatn, vöðva, mat og drykk í meltingarveginum og ýmsar eðlilegar sveiflur líkamans. Ein kyrrstæð vika þýðir því […]

Líkami

Sex hollar morgunvenjur sem geta gert daginn betri

Ert þú týpan sem hoppar skælbrosandi fram úr rúminu eða snúsarðu þar til þú þarft að klæða þig, bursta tennurnar, kaffiþamba þig og hlaupa út — svo að segja á sömu mínútunni? Morgunrútínan þarf ekki að innihalda ísbað, hugleiðslu, tíu kílómetra hlaup og sérvalinn ofurdrykk eða grænan djús fyrir klukkan sex. Nokkrar einfaldar venjur geta […]

Næring

Drekkur þú of mikið gos? Prófaðu þetta í sjö daga

Það er kannski ekki kalda gosið með föstudagspizzunni sem er vandamálið. Vandamálið gæti frekar verið dósin sem er opnuð af gömlum vana í hádeginu. Önnur í bílnum á leiðinni heim. Og sú þriðja yfir sjónvarpinu — sem þú manst varla eftir að hafa drukkið. Gosdrykkja getur nefnilega orðið svo sjálfvirk að við hættum að spyrja […]